Katrín prinsessa af Wales segir krabbamein hafa breytt sér líkamlega en að greiningin hafi líka haft dýpri áhrif. Ný heimildarmynd þar sem prinsessan veitir innsýn í persónulega reynslu af veikindum sínum og bataferli verður frumsýnd um næstu helgi.
„Krabbamein breytir manni“
Myndin nefnist Heal og verður sýnd á BBC 29. nóvember. Í frétt á vef BBC segir að myndin sé afar persónuleg.
Katrín segir þar frá reynslu sinni af að veikjast af krabbameini en hún greindi frá veikindum sínum í mars 2024, þegar hún var byrjuð í lyfjameðferð. Í janúar 2025 tilkynnti hún að hún væri í bata. Eftir það sneri hún smám saman aftur til starfa í konungsfjölskyldunni.
„Krabbamein breytir manni. Það breytir líkamanum og breytir manni líkamlega en það hefur mun dýpri áhrif að fá krabbameinsgreiningu,“ segir Katrín í stiklu myndarinnar.
Hún hefur ekki gefið upp hvaða tegund krabbameins hún greindist með.
Í myndinni er meðal annars fylgst með þegar hún tók þátt í Three Peaks-áskoruninni fyrr á þessu ári. Hún felst í að klífa hæstu tinda Englands, Skotlands og Wales á einum sólarhring.
Katrín hefur áður tjáð sig um veikindin og sagt frá því hvernig sýn hennar á lífið breyttist eftir þau. Hún hefur lagt áherslu á að batinn snúist ekki aðeins um líkamlega heilsu heldur einnig um andlega líðan.
Hún hefur rætt opinskátt um þær sveiflur sem fylgdu bataferlinu og viljað leiðrétta þann misskilning að fólk geti snúið aftur til fyrra lífs um leið og meðferð lýkur.
Katrín er eiginkona Vilhjálms Bretaprins, ríkisarfa Bretlands. Þau eiga saman þrjú börn, Georg sem er 13 ára, Karlottu, 11 ára, og Louis, 8 ára.