Áhöfn rússnesks flutningaskips sem varð fyrir drónaárás á Finnlandsflóa í morgun er að yfirgefa skipið og fara í björgunarbáta. Eldur kviknaði um borð eftir árásina. Eftir rýmingu hefjast slökkvistörf. Einnig er verið að undirbúa aðgerðir vegna hugsanlegs olíuleka frá skipinu.
Finnski herinn greindi frá því í morgun að drónaárás hefði verið gerð á flutningaskipið Sparta II á alþjóðlegu hafsvæði á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki. Finnlandsflói liggur inn úr Eystrasalti, milli Finnlands í norðri og Eistlands og Rússlands í suðri.
Skipið rak síðan inn í finnska lögsögu. Það var á leið frá Pétursborg til Kalíníngrad, hólmlendu Rússa við Eystrasaltið.
Samkvæmt vefsíðunni Opensanctions sætir það refsiaðgerðum bæði í Úkraínu og Bandaríkjunum. Skipið er í eigu fyrirtækis sem rússneska varnarmálaráðuneytið á. Grunur leikur á að það hafi verið notað til að flytja vopn frá Sýrlandi til Rússlands.
Á blaðamannafundi finnsku strandgæslunnar síðdegis kom fram að verið væri að flytja áhöfnina í björgunarbáta.
„Eftir það hefjast slökkvistörf,“ sagði Mikko Simola, yfirmaður finnsku strandgæslunnar, á blaðamannafundinum. Hann sagði ekki liggja fyrir hvort einhverjir úr áhöfninni hefðu orðið fyrir meiðslum.
Varðskip og dráttarbátar finnsku strandgæslunnar eru á vettvangi og Eistar sendu björgunarskip þangað. Annað rússneskt skip er skammt frá, og mögulega verða skipverjar fluttir þangað eftir rýmingu.
Simola sagði að einnig sé verið að undirbúa aðgerðir vegna hugsanlegs olíuleka.
Hann sagði Rússana ætla að draga skipið í rússneska lögsögu þegar björgunaraðgerðum er lokið.
Samkvæmt finnska hernum er líklegt að Úkraínumenn standi að baki árásinni.