Til stendur að opna starfsemi Golfturnsins í Turninum við Smáratorg næstu helgi í rými þar sem áður var Arena rafíþróttamiðstöðin. Hluti af undirbúningnum var að skipta um skilti utan á húsinu.
„Það vildi ekki betur til en svo að það sem við vorum að setja upp fauk af í nótt,“ segir Hjörtur Vigfússon, framkvæmdastjóri Golfturnsins.
Einhverjar plötur losnuðu líkt og sést hér á myndinni. Hjörtur segist hafa fengið símtal í morgun þar sem hann var látinn vita. Miðað við aðstæður hafi verið mun meira en tólf metrar á sekúndu líkt og veðurspáin sagði til um.
„Það komu mjög velviljaðir björgunarsveitarmenn, slökkviliðsmenn og lögreglumenn,“ segir hann.
„Við erum fegin að það urðu ekki nein manntjón og höfum ekki heyrt af neinum skemmdum. Mesta tjónið er að nýja golfturnaskiltið hafi farið niður.“
Skiltinu verði komið aftur örugglega fyrir áður en opnað verður fyrir starfsemina.