Þetta kom fram í skýrslu Seðlabankans nú í nóvember. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir oft erfitt að rekja peningana og ná þeim til baka.
„Það sem er hins vegar gert er að reyna að rekja þessar færslur. Þess vegna er svo afar mikilvægt að fólk fari strax og láti bankann vita en oftast er erfitt að rekja peningana því þeir eru farnir af þeim reikningum sem þeir voru kannski upphaflega á. Iðulega eru þetta skipulagðir glæpahópar og þá eru peningarnir einfaldlega millifærðir úr landi og getur verið seinlegt og erfitt að finna þá.“
Heiðrún hefur jafnframt grun um að ekki séu öll svik tilkynnt.
„Ég myndi nú telja að það væru ákveðnar vísbendingar um að þessar fjárhæðir gætu jafnvel verið vantaldar ef við erum að tala eins og með ástarsvik og þá er að, ef einhver aðili er að skammast sín þá upplýsa þeir ekkert endilega um svikin. Þannig að ég myndi frekar telja að þetta væri vantalið heldur en hitt, sko. Ja, þetta er svo sem bara tilfinning en ekki byggt á einhverjum gögnum af því að það eru bara margir aðilar sem vilja ekki upplýsa að þeir hafi verið blekktir.“