Slökkviliðsmenn voru enn að berjast við eldinn í dag. Sextíu manns eru sagðir hafa verið inni í byggingunni þegar eldurinn kviknaði og leita viðbragðsaðilar að 36 sem saknað er en þeir eru taldir hafa lokast inni í verksmiðjunni þegar eldurinn kom upp.
Ekkert er vitað um eldsupptök. BBC greinir frá en myndir og myndskeið af vettvangi sýndu verksmiðjuna í ljósum logum í nótt.