Loftslagsráðstefnan COP31 hefur slegið met í tímalengd en hann er kominn á annan dag fram yfir áætlaðan tíma. Þetta er fyrsti fundurinn eftir að ljóst var að markmið Parísarsamkomulagsins væri úr augnsýn og segir Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, að þess vegna sé krafa um harðari afstöðu á fundinum hjá Evrópusambandsríkjum og líkt þenkjandi þjóðum. Hún var stödd á loftslagsráðstefnunni í Tyrklandi fyrir helgi.
„Eins og staðan er núna þá er ein sviðsmynd sú að það gæti bara orðið þannig að það verði ekki nógu margir í salnum til þess að hægt sé að taka ákvörðun. Og þá er spurning hvort fundi yrði frestað eða jafnvel slitið án ákvörðunar. Stjórnmálayfirlýsing fundarins er bara mjög umdeild akkúrat núna og Evrópusambandið, Ísland og fleiri lýst mjög þungum áhyggjum af stöðu hennar og óánægju með hana, bara að hún sé vonbrigði. Það er ekki minnst á útfösun jarðefnaeldsneytis, vísindunum er ekki gert nógu hátt undir höfði og það er svona verið að í rauninni segja bara að við sættum okkur ekki við stöðu sem leiðir okkur aftur á bak.“
Aðaldeiluefnið er orðalag er varðar jarðefnaeldsneyti.
„Aðaldeiluefnið er hvort að yfirlýsingin taki nógu fast á því að til þess að bregðast við loftslagsbreytingum verði heimurinn allur að fasa út jarðefnaeldsneyti. Það er stóra málið. Það eru fleiri mál undir en þetta er aðalatriðið sem lönd eins og Ísland og sambönd eins og Evrópusambandið og fleiri eru í rauninni ekki að sætta sig við að verði ekki hluti af yfirlýsingunni akkúrat núna en það er samt mjög erfitt að segja hvernig það endar vegna þess að fundurinn stendur í rauninni bara enn yfir og það er verið að deila um þetta bara akkúrat núna.“
Hún segir að raddir séu uppi um þörfina á að endurskoða samningsferlið en öll ríki sem sækja fundinn þurfa að samþykkja einróma þá stefnu sem gefin er út. Umhverfisráðherra kom heim til Íslands fyrir helgi og sendinefndin er á ferðalagi heim í dag. Jóna segir að drögin eins og þau líta út á þessari stundu séu djúp vonbrigði.
„Það voru djúp vonbrigði með þau og því að niðurstaða sem stenst ekki kröfur samtímans er bara engin niðurstaða og við sættum okkur ekki við það að ferlið í rauninni leiði okkur aftur á bak.“