Öll ríkin greiddu atkvæði um fjórðu samningsdrögin í morgun en öll ríkin þurfa að samþykkja drögin svo þau verði að samkomulaginu. Svo reyndist ekki og var ákveðið að slíta ráðstefnunni án þess að undirrita samkomulag. Samt sem áður er þessi ráðstefna lengsta COP-ráðstefnan í sögunni.
Það var síðast á COP-ráðstefnu í Hollandi árið 2000 sem ekki tókst að undirrita samkomulag. Önnur ráðstefna var haldin ári síðar einungis til þess að leggja lokahönd á samkomulagið.
Helsti ágreiningspunkturinn varðaði jarðefnaeldsneyti. Í drögunum var einungis óbeint vísað í jarðefnaeldsneyti þar sem vísað var í samkomulag COP28-ráðstefnunnar frá árinu 2023 þar sem ríki samþykktu í fyrsta sinn að „hverfa frá“ jarðefnaeldsneyti í orkukerfum. Í fyrstu drögum ráðstefnunnar var sex sinnum minnst á jarðefnaeldsneyti.
Stór hópur ESB-ríkja lagðist gegn því að ekkert kæmi fram um jarðefnaeldsneyti á meðan ríki undir forystu Sádi-Arabíu vildu að klausan um að draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti kæmi ekki fram.
Murat Kurum, forseti COP31 sem að þessu sinni fór fram í Tyrklandi, sagði að hann og fulltrúar hans hefðu unnið daga og nætur með það að markmiði að ná miklu betri útkomu af fundinum.