Tilefni orða Vilhjálms eru afdráttarlaus orð Hönnu Katrínar sem sögðu að starfsmenn Hvals ættu að haga sér eins og menn.
Þetta var í kjölfar fréttar Vísis sem greindi frá heldur dólgslegum tilburðum starfsmanna sem fólust í því að veifa hvalsbelli að kvikmyndatökumönnum Sýnar um leið og hvalshræ var dregið upp til verkunar í hvalstöðina í Hvalfirði.
Eftir að Vilhjálmur hafði látið hin digurbarkalegu ummæli falla dregur hann eilítið í land í kröftugri Facebook-færslu:
„Ég ætla ekki að bera blak af hegðun einstakra starfsmanna Hvals. Þvert á móti tel ég að okkur beri ávallt að sýna dýrum virðingu og undir engum kringumstæðum að gefa andstæðingum hvalveiða færi á að kasta rýrð á heila atvinnugrein vegna hegðunar fárra einstaklinga,” segir Vilhjálmur.
Hvar er Hanna þegar ofsóknir Pauls Watson eru annars vegar?
En hann bætir svo við að það veki furðu hans að atvinnuvegaráðherra vilji grípa þetta tækifæri til að koma andstöðu sinni við hvalveiðar á framfæri en láti hins vegar algerlega hjá líða að fordæma þá skipulögðu atlögu sem starfsmenn Hvals hafa mátt þola af hálfu erlendra öfgaaðgerðasinna.
„Hvers vegna heyrum við ráðherrann ekki skora á Paul Watson og félaga hans að hætta hótunum, áreitni og ofsóknum gegn starfsfólki Hvals? Hvers vegna heyrum við ekki ráðherrann fordæma mann sem hefur sjálfur viðurkennt að hafa sökkt tveimur hvalveiðiskipum og valdið stórfelldu eignatjóni í nafni eigin baráttu? Hvers vegna er ekki minnst á að markmið þessara aðgerðasinna er að koma í veg fyrir að íslenskt fólk geti stundað löglega atvinnu og þar með stefna atvinnuöryggi hundraða fjölskyldna í hættu?“
Stjórnarskrárvarinn réttur fólks að velja sér atvinnu
Vilhjálmur segir miklu auðveldara að gagnrýna starfsmenn Hvals þegar einstök tilvik komi upp.
„En það er miklu erfiðara að standa með því fólki sem dag eftir dag mætir hótunum og stöðugu áreiti fyrir það eitt að vinna löglegt starf samkvæmt íslenskum lögum og leyfum stjórnvalda.“
Vilhjálmur hefur verið einarður talsmaður þess að Hvalur fái að veiða og verka hval og segir skipulagða herferð rekna með það yfirlýsta markmið að stöðva löglega atvinnustarfsemi; „Knýja fyrirtæki til að hætta rekstri og svipta fólk atvinnu sinni.“ Ekki einungis sé vegið að fyrirtækinu heldur einnig þeim stjórnarskrárvarða rétti fólks til að velja sér atvinnu og lifa af heiðarlegri vinnu.