Fjallað er um þetta í ársskýrslu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2026. Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri samtakanna, segir í viðtali við fréttastofu að ýmis kostnaður vegna fjarverunnar bætist við þá áætlun.
„Þá er raunar ekki tilgreindur alls konar annar kostnaður, svo sem vegna afleysinga og aukins álags á aðra og svo framvegis.“
Páll segir aðalatriðið að fá greiningu á þessum málaflokki til að geta greint ástæður þess að fólk nýti sér veikindaréttinn í meira mæli og þá sé hægt að leita leiða til að koma þeim til aðstoðar. Líðan starfsmanna sé í forgangi. Hann segir umræðu um hærra veikindahlutfall hjá sveitarfélögum en á almennum vinnumarkaði hafa orðið tilefni samstarfsins. Fyrst þurfi að samræma mælingar til að fá áreiðanlegar upplýsingar og geta borið stöðuna saman milli sveitarfélaga.
„En aðalmálið er að við skoðum saman hverjar ástæðurnar geti verið. Þess vegna er mikilvægt að við séum með sömu mælikvarðana og vinnum síðan sameiginlega að lausnum sem tengjast því hvað er það sem við þurfum í raun og veru að bæta í okkar umhverfi til þess að lækka þetta hlutfall. Það er í raun og veru stóra verkefnið.“
Hann bendir á að höfuðborgarsvæðið sé einn vinnumarkaður. Samræmt verklag geti skapað fyrirsjáanleika fyrir fólk sem færir sig milli sveitarfélaga. Vinnan sé þó enn á greiningarstigi.
„Við erum bara svona í mjög kafi í þessu verkefni. Við erum að, að vinna í þessu í, starfshópi um, um þetta verkefni og við erum ekki komin með neitt svona konkret til þess að tala um núna.“
Páll væntir þess að hægt verði að segja meira frá verkefninu í byrjun næsta árs. Markmiðið sé að bæta líðan starfsfólks og nýta fjármuni sveitarfélaganna betur.