Vestmannaeyingar halda flesta helgarviðburði allra bæjarfélaga á landinu á sumrin. Fótboltamót, Lundahlaup, Goslokahátíð og Þjóðhátíð laða að þúsundir gesta ár hvert. Mikið hökt hefur verið á samgöngum til og frá Eyjum síðan í vetur. Herjólfur bilaði og líka Baldur og dýpkun Landeyjahafnar hefur haft áhrif en þeirra virðist ekki gæta yfir sumartímann.
„Veturinn var náttúrlega erfiður eins og allir vita en sumarið hefur bara gengið vel þrátt fyrir að hafi komið upp einhverjir hnökrar. Auðvitað eru skip flöskuháls, það gefur auga leið. Það eru ákveðin pláss en það gengur bara vel og það mun ganga mjög vel um helgina að ferja fólk til og frá Eyjum. Það er von á mörgum og ég held bara að fólk sé mjög spennt fyrir því að geta komið og heimsótt okkur þessa helgi,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Eiga von á fjölmenni um helgina
Goslokahátíðin er um helgina og Íris segir von á þúsundum gesta.
„Stemningin er bara gríðarlega góð. Þetta er svona hátíðin þar sem við horfum til baka í ræturnar og margir menningar- og listviðburðir eru í boði og þetta er hátíð þakklætis.“
Íris ítrekar að umræðan virðist ekki hafa áhrif, þrátt fyrir að einhverjir hafi lent í vandræðum með að komast heim eftir Orkumótið um síðustu helgi og fella hafi þurft niður sex ferðir Baldurs vegna bilunar.
„Nei, mér finnst þetta ekki vera hafa áhrif, hvorki á sumarið eða þessa svokölluðu lausatraffík og heldur ekki fyrir þessa helgi.“