Veiðar á langreyðum síðustu daga hafa verið í samræmi við reglugerð um þær. Þetta segir í tilkynningu frá Hval hf. sem Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, sendi frá sér í dag. Á þriðjudag var greint frá því að Matvælastofnun hefði til rannsóknar dráp á langreyði 22. júní.
Langreyðurin var skotin með fjórum sprengiskutlum og 31 mínúta leið frá því hún var fyrst skotin þangað til hún drapst.
Í tilkynningu Hvals segir að á yfirstandandi vertíð hafi 10 langreyðar verið skotnar. Í öllum tilvikum hafi aðalskot og umskot hægt skilgreint marksvæði í samræmi við reglugerð nr. 895/2023. Reglugerðin kveður t.d. á um marksvæði, skotvinkil og endurskot.
„Samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum hefur MAST til rannsóknar tilvik þegar skjóta þurfti langreyð fjórum skotum. Í þessu samhengi hefur jafnframt ítrekað verið vísað til þess að á hvalvertíð 2023 hafi veiðar verið tímabundið stöðvaðar. Sú stöðvun kom til af því að MAST taldi skyttu og áhöfn hafa látið hjá líða að framkvæma endurskot þrátt fyrir öll meint tækifæri þar á. Hvalur var ósammála því mati,“ segir í tilkynningunni.
Hvalur hf. og stjórnendur fyrirtækisins séu meðvitaðir um kröfur sem gerðar eru til aflífunar dýra.
„Starfsemi félagsins er löguð að því og hefur miklu verið kostað til. Það er hins vegar eðli hvalveiða, líkt og annarra veiða á villtum dýrum, að það er engin trygging fyrir því að unnt sé að tryggja tafarlausan dauða við hverja einustu aflífun. Slík krafa leiðir heldur ekki af dýravelferðarlögum. Sem betur fer er það hins vegar raunin í meirihluta tilvika að eitt skot dugi.“