Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að umrætt mál hafi komið upp í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sér um Hafnarfjörð og Garðabæ.
Í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um Austurbæ, Miðbæinn, Vesturbæ og Seltjarnanes, var einstaklingur handtekinn grunaður um fjársvik. Hinn handtekni neitaði að segja til nafns af kröfu lögreglu.