Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til Beijing þar sem hann fundar með Xi Jinping forseta Kína í dag og á morgun. Forsetarnir ræða saman bak við luktar dyr og búist við að þeir taki sér minnst klukkustund til skrafs og ráðagerða.
Efnt var til glæsilegrar móttökuathafnar þar sem Xi ávarpaði Trump og velti fyrir sér hvort Bandaríkin og Kína gætu bætt samskipti sín þannig að komist verði hjá Þúkýdídesar-gildrunni svokölluðu, sem lýsir þeirri spennu sem myndast getur þegar rísandi veldi ógnar stöðu þess sem fyrir er og leiðir af sér stríð þótt hvorugt vilji það.
Xi sagði ríkin fremur eiga að vinna saman en vera keppinautar. Það tryggi hagsæld og hagsmuni heimsins alls. Trump sagði í sinni ræðu heiður að vera vinur Xis, þeim hefði ávallt tekist að leysa ágreiningsefni í bróðerni.
Jafnframt hlakkaði hann til viðræðnanna sem myndu leiða af sér betri samskipti ríkjanna en nokkru sinni fyrr. Búist er við að þeir ræði um tolla, stríðið við Íran og málefni Taívan auk fleiri aðkallandi mála.
Kínverskir miðlar hafa eftir Xi Jinping að Taívan-málið geti orðið helsti ásteitingarsteinninn í samskiptum Kína og Bandaríkjanna.
Fari allt á versta veg gæti ríkjunum lent saman og jafnvel komið til átaka. Friður á Taívansundi sé mikilvægur Bandaríkjunum og Kína en sjálfstæði Taívan passi ekki inn í þá mynd.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari tíðindi berast af viðræðunum.