Kouri Richins, bandarísk kona á miðjum fertugsaldri, var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi í Utah án möguleika á reynslulausn fyrir að eitra fyrir eiginmanni sínum. Richins komst í fréttir með því að skrifa barnabókina Are you with me til að hjálpa þremur börnum sínum við að glíma við sorgina vegna fráfalls Erics, föður þeirra.
Richins var sakfelld í mars fyrir að bana eiginmanninum árið 2022 með því að gefa honum hanastél sem innihélt fimmfalt það magn fentanýls sem banvænt getur talist. Hún hefði erft fjórar milljónir dala auk tveggja milljóna líftryggingar sem hún stofnaði til án vitundar eiginmannsins. Málið hefur vakið mikla athygli í Utah.
Nokkrum vikum fyrr varð Eric alvarlega veikur eftir að kona hans færði honum jafneitraða samloku. Dómarinn sagði í úrskurði sínum að Kouri Richins væri of hættuleg til að mega nokkurn tíma ganga laus.
Richins hefur ætíð haldið fram sakleysi og sagst buguð án bónda síns og barna. Hún hefur viðurkennt framhjáhald og sálfræðingur las yfirlýsingar tveggja barna hennar fyrir réttinum sem kváðust sakna föður síns en móðurinnar ekki. Þeim fyndist þau ekki örugg ef hún gengi laus.