Málefni unga fólksins eru kjósendum í Hafnarfirði hugleikin, til dæmis hvað varðar fæðingarorlof, dagvistun, skólamál og húsnæðismál.
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins. Þar búa ríflega 32 þúsund manns, miðað við mannfjölda síðustu áramót.
Á liðnu kjörtímabili hafa Framsókn og Sjálfstæðisflokkur verið þar í meirihluta. Auk þeirra eru nú í framboði Vinstrið, Viðreisn, Miðflokkurinn og Samfylkingin.
Börn komast inn í leikskóla fjórtán mánaða í Hafnarfirði. Bæjarbúar sem fréttastofa ræddi við vilja sjá meira gert fyrir foreldra ungbarna. „Fæðingarorlofsmálin, að fólk fái heimgreiðslurnar sem er verið að tala um, að fólk þurfi ekki að setja börn á leikskóla 12 mánaða, það geti valið,“ segir íbúi í bænum.