Sendinefndir Ísraelsríkis og Líbanons mætast til tveggja daga friðarviðræðna í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna í dag.
Líbanir sækjast helst eftir að ákvæði vopnahléssamkomulagsins, sem rennur út á sunnudag, verði fest í sessi hefur AFP-fréttaveitan eftir ónafngreindum embættismanni. Brýnast sé að stöðva dauða og eyðileggingu af hálfu Ísraela.
Vopnahléð hófst 17. apríl, var framlengt viku síðar og síðan þá hefur Ísraelsher drepið á fimmta hundrað manns samkvæmt upplýsingum líbanskra yfirvalda. Þau segja yfir 2.800 hafa verið drepna í atlögum Ísraela frá því í marsbyrjun, þar á meðal minnst 200 börn. Hezbollah-hreyfingin segir liðsmenn sína meðal fallinna.
Þetta eru þriðju viðræður fulltrúa ríkjanna og verða haldnar í húsakynnum utanríkisráðuneytisins í Washington, en hvorki ráðherrann Marco Rubio né Donald Trump verða viðstaddir enda báðir í Kína.
Mike Huckabee og Michel Issa, sendiherrar Bandaríkjanna í Ísrael og Líbanon, verða milligöngumenn ásamt Mike Needham, nánum aðstoðarmanni Rubios. Sendiherrar Ísraels og Líbanons fara fyrir samninganefndum ríkja sinna.
Ísraelar hafa gert þungar árásir á Líbanon, gerðu innrás í landið sunnanvert og heita áframhaldandi atlögum að bækistöðvum Hezbollah-hreyfingarinnar þrátt fyrir vopnahléð. Hún hóf árásir á Ísrael í hefndarskyni fyrir að íranski æðstiklerkurinn Ali Khamenei var drepinn í upphafi stríðsins, 28. febrúar.
Hreyfingin er hliðholl Írönum sem krefjast varanlegs vopnahlés í Líbanon áður en þeir geti fallist á samkomulag um endalok styrjaldarinnar. Íranar hafa ýft fjaðrir Donalds Trump Bandaríkjaforseta með því að fallast ekki á samkomulag á hans forsendum.
Um leið og Trump tilkynnti framlengingu vopnahlésins 23. apríl boðaði hann sögulegan leiðtogafund Josephs Aoun Líbanonsforseta og Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels. Af þeim fundi hefur ekki orðið enda hefur Aoun krafist öryggistrygginga og að atlögum Ísrael linni áður.