Innherjaleki borgarráðs á borð Fjármálaeftirlitsins
Rannsókn á leka á innherjaupplýsingum úr borgarráði er komin til fjármálaeftirlitsins.„Það er mjög íþyngjandi ef það er farið almennt í tölvur kjörinna fulltrúa, en þetta mál þarf að hafa sinn gang,“ segir oddviti Sjálfstæðisflokksins.
„Við lítum málið alvarlegum augum, enda er það farið til Fjármálaeftirlitsins,“ segir Alexandra Briem, oddviti Pírata og formaður borgarráðs, um rannsókn í tengslum við leka á innherjaupplýsingum úr borgarráði.
Borgarfulltrúar meirihluta Reykjavíkurborgar hafa heimilað regluverði Reykjavíkurborgar að fá fullan aðgang að tölvusamskiptum sínum í tengslum við leka á ársreikningi Reykjavíkurborgar. Lekinn átti sér stað í lok apríl þegar mbl.is birti frétt upp úr ársreikningnum á sömu mínútu og upplýsingarnar birtust á vef Kauphallarinnar.
Fangelsisrefsing möguleg
Á fundi borgarráðs fyrir helgi kom fram að ársreikningur Reykjavíkurborgar er bundinn lögmæltri trúnaðar- og þagnarskyldu og teljast upplýsingarnar jafnframt til innherjaupplýsinga þar sem borgin er útgefandi skuldabréfa á skipulögðum markaði. Óheimil miðlun slíkra upplýsinga getur varðað refsingu samkvæmt lögum um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Brotið varðar við hegningarlög og liggur fangelsisrefsing við brotinu.
