Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir að Íslendingum hafi mistekist að þróa biðlista eftir heilbrigðisþjónustu, þeir séu í dag óáreiðanlegir, á biðlistum hjá landlækni geti jafnvel verið látið fólk. „Þessu verðum við að koma í horf og við höfum verið að reyna á spítalanum að þróa samhæft kerfi en þetta þarf að gera á landsvísu,“ segir Runólfur í viðtali í þættinum Synir Egils.
Gunnar Smári sagði Runólfi hvað læknir sagði við hann í sumar: „Það er ekki viðeigandi“