Hagar auka hagnað sinn um 65%
Kallað var eftir samstöðu um baráttu gegn verðbólgu, en hagnaður eykst af verslunum. Stríðið við Persaflóa jók hagnað Haga.
Verslanafélagið Hagar, sem rekur Bónus, Hagkaup, Olís og fleiri keðjur, jók hagnað sinn milli ára um 64,5% á fyrsta ársfjórðungi, vegna „áhrifa hækkaðs heimsmarkaðsverðs olíu“ og „sterkari rekstrar verslana og vöruhúsa á Íslandi.“
Hagar högnuðust þannig um 1,9 milljarða króna frá 1. mars til 31. maí síðastliðins, en aðeins um 1,17 milljarða í fyrra, sem þó reyndist metár í rekstri Haga. Í fyrra sagði Finnur Oddsson, forstjóri Haga, að það væri „meðbyr í rekstri verslana og vöruhúsa á Íslandi“.
Barist gegn verðbólgu
Verð á mat og drykk hefur hækkað um 3,9% síðustu 12 mánuði. Til þess að bregðast við verðbólgu og fyrirbyggja að hún fari yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst lækkaði ríkisstjórnin virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11% í apríl.
Bjarni Benediktsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, boðaði í lok mars „samtal um þjóðarsátt“.
„Á einhverjum tímapunkti þarf bara …