Verðbólga á evrusvæðinu hjaðnaði umfram væntingar í júní. Það er talið munu draga úr þrýstingi á Seðlabanka Evrópu um að hækka stýrivexti.
Ársverðbólga á evrusvæðinu, sem telur 21 af 27 aðildarríkjum ESB, var 2,8% í júní og lækkaði niður úr 3,2% í maí.
Samkvæmt frétt Reuters var búist við þriggja prósenta verðbólgu þannig að þessi niðurstaða kom þægilega á óvart, en hún er rakin til þess að matvæla- og orkuútgjöld drógust saman.