Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Lögregla greindi frá því í dag eftir fyrirspurn fréttastofu að ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hefðu borist sprengjuhótanir í gegnum tölvupóst.
Samskiptadeild HÍ staðfestir að slíkur póstur hafi borist háskólanum snemma í morgun. Hann hafi verið tilkynntur til lögreglu sem hafi metið hótunina ótrúverðuga og skólinn því ekki þurft að bregðast frekar við.
Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia staðfestir sömuleiðis að flugvellinum hafi borist slík hótun. Hún hafi samstundis verið tilkynnt til lögreglu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti einnig að þremur hótelum á höfuðborgarsvæðinu hefðu borist hótanir í tölvupósti.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekkert sem bendir til þess að hótanirnar tengist þeim sem hafa borist í Evrópu undanfarna daga.
Til skoðunar er hvort þær tengist hótunum sem bárust fyrr í mánuðinum hér á landi. Lögregla taki allar slíkar hótanir alvarlega og fylgist áfram grannt með stöðu mála. Miðað við þær upplýsingar sem liggi fyrir að svo stöddu telji hún aftur á móti ekki ástæðu til frekari aðgerða.
Fréttastofa greindi frá því fyrr í mánuðinum að talið væri að Mohamed Kourani stæði á bak við sprengjuhótanir sem höfðu þá borist stofnunum og fyrirtækjum yfir nokkurra vikna tímabil.