Fjörugar umræður fóru fram á Facebook-síðu fjölmiðlamannsins Egils Helgasonar í gær eftir að hann birti færslu um baðlón hér á landi og fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á starfsemi þeirra.Tilefnið var hörð gagnrýni Samtaka ferðaþjónustunnar á áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 í 24 prósent. Egill var hins vegar á öðru máli og sagði baðlón sannkallaðan lúxus sem eðlilegt væri að bæri fullan virðisaukaskatt.
Egill segir baðlón lúxus fyrir efnafólk – Bjarnheiður svarar: „Alveg stórmerkileg þessi andúð“