Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Hayden Panettiere sagði frá kynferðisofbeldi í Hollywood skömmu fyrir andlátið – Fleiri hafa látist skömmu eftir að hafa opnað sig um kynferðisofbeldi í bransanum

Leikkonan Hayden Panettiere, sem lést á sunnudag aðeins 36 ára gömul, hafði aðeins nokkrum mánuðum fyrir andlátið stigið fram með ítarlegar frásagnir af því hvernig var að alast upp sem barnastjarna í Hollywood og aðstæðum þar sem hún sagðist hafa verið mótuð til hlýðni frá unga aldri.

Panettiere lést 16. ágúst. Fjölskylda hennar staðfesti andlátið í gegnum talsmann hennar en dánarorsök hefur ekki verið gerð opinber. Málið er til rannsóknar.


Lögreglan í Greenville í Suður Karólínu hefur jafnframt sagt að bráðabirgðarannsókn hafi ekki leitt neitt í ljós sem bendir til þess að um saknæmt athæfi hafi verið að ræða.

„Að segja nei hefði í raun aldrei verið valkostur“

Panettiere gaf út bókina This Is Me: A Reckoning þann 19. maí síðastliðinn og ræddi á sama tíma opinberlega um ýmsar dökkar hliðar þess að hafa alist upp innan bandaríska skemmtanaiðnaðarins.

I was groomed“

Panettiere hóf feril sinn þegar hún var barn og lýsti því í viðtali við The Hollywood Reporter að hún hefði orðið fyrir grooming, eða skipulagðri tælingu, í leiklistarbransanum. Hún sagði að henni hefði frá unga aldri verið kennt að þóknast öðrum og fylgja fyrirmælum fullorðinna.

Að segja nei hefði í raun aldrei verið valkostur þegar kæmi að vinnunni, að hennar sögn. Hún sagði þessa stöðugu þörf fyrir að þóknast öðrum og skort á stjórn yfir eigin lífi síðar hafa haft mikil áhrif á hana og tengdi það meðal annars við fíknivanda sinn.

Vinkona gabbaði hana upp í rúm með frægum manni

Panettiere sagði frá því að hafa verið stödd á svokallaðri súper snekkju við Suður Frakkland þegar hún var 18 ára. Með henni var kona sem hún lýsti sem einni af sínum nánustu trúnaðarvinkonum.

Undir lok ferðarinnar hafi konan beðið hana að koma með sér niður í einkaklefa á skipinu. Þar beið „frægur breskur söngvari og lagahöfundur á þrítugsaldri“, ber að ofan í rúmi undir sæng. Panettiere nafngreindi manninn ekki.

Að sögn Panettiere hvíslaði vinkonan síðan að henni að hún vildi að hún færi upp í rúmið til mannsins og yfirgaf herbergið. Panettiere sagðist fyrst hafa hlýtt í losti en áttaði sig síðan á stöðunni, sagði manninum að ekkert myndi gerast og yfirgaf herbergið.

Hún sagði reynsluna hafa verið sérstaklega mikið áfall vegna þess að hún hafði treyst konunni fullkomlega. Hún lýsti því síðar að áralöng reynsla af því að vera „stjórnað“ af fullorðnu fólki í skemmtanabransanum hefði kennt henni að treysta fólkinu í kringum sig og bæla niður eigin eðlishvöt.

Þegar Panettiere rifjaði atvikið upp sagði hún að þótt hún hefði talið sig mjög þroskaða þegar hún var 18 ára hefði hún í raun ekki haft þroska til að gera sér fulla grein fyrir hættunum í kringum sig. Hún sagði einnig að þegar hún áttaði sig á því hvað væri að gerast hefði hún fundið að fólkinu í kringum hana fyndist þetta ekkert óvenjulegt.

13 ára í kossaatriði með fullorðnum manni

Panettiere rifjaði einnig upp tökur á kvikmyndinni Raising Helen frá árinu 2004.

Hún var aðeins 13 ára þegar hún tók þar upp fyrsta ástar- og kossaatriði lífs síns með leikara sem hún lýsti sem manni á þrítugsaldri eða rúmlega tvítugum. Entertainment Weekly segir að maðurinn hafi verið að minnsta kosti sjö árum eldri en hún.

Panettiere sagði móður sína hafa staðið hjá á meðan atriðið var tekið upp og lýsti því hvernig fullorðni leikarinn notaði tunguna við kossinn án þess að hún hefði átt von á því.

Hún sagðist hafa orðið mjög hissa en ekki viljað gera mikið mál úr því. Hún hefði einfaldlega hugsað með sér að svona væri þetta þá gert.

Frásögnin vakti sérstaka athygli í ljósi þess hvernig Panettiere lýsti sjálf uppvexti sínum í bransanum, að hún hefði verið alin upp við að hlýða og að „nei“ hefði ekki verið raunverulegur valkostur.

Sagði Óskarsverðlaunahafa hafa berað sig

Í bókinni greindi Panettiere jafnframt frá öðru atviki þegar hún var 19 ára.

Hún sagðist hafa verið í samkvæmi þegar maður sem hún sagði vera Óskarsverðlaunahafa sem var í miklum metum í Hollywood afhjúpaði kynfæri sín fyrir henni þegar hún var að yfirgefa svæðið. Hún nafngreindi manninn ekki.

Á síðustu mánuðum ævi sinnar hafði Panettiere byrjað að tala mun opinskár um reynslu sína sem barnastjarna, það sem hún sjálf kallaði „grooming“

Panettiere sagði atvikið hafa komið henni algjörlega í opna skjöldu. Fram að þessu hefði hún almennt upplifað karlmenn í Hollywood sem kurteisa, þótt hún hefði orðið fyrir óviðeigandi athugasemdum og hegðun áður.

Óttaðist lögsóknir og að þurfa að mæta fólkinu aftur

Panettiere var í kjölfar útgáfu bókarinnar spurð hvers vegna hún hefði ákveðið að nafngreina ekki þá frægu einstaklinga sem komu fyrir í þessum frásögnum.

Hún sagði eina ástæðuna vera að bransinn hefði lítið breyst. Einnig sagði hún að um væri að ræða fólk sem hún gæti þurft að hitta aftur.

Hún sagði jafnframt við The Hollywood Reporter að ákvörðunin hefði verið tekin til að vernda sjálfa sig og fyrirtæki sitt fyrir mögulegum lögsóknum frá mjög reiðu frægu fólki.

Í Tamron Hall Show sagði hún jafnframt að hún hefði viljað segja sína eigin sögu án þess að draga aðra í svaðið opinberlega, þótt hluti hennar vildi vissulega afhjúpa „þetta hyski“. Hún bætti síðan við að þetta væri þrátt fyrir allt iðnaður sem hún þyrfti að geta starfað í.

Frásagnirnar birtust aðeins þremur mánuðum fyrir andlátið

Tímasetningin á dauða hennar vekur því óhjákvæmilega athygli. Panettiere gaf út bókina 19. maí og fór í kjölfarið í fjölmiðlaviðtöl þar sem hún ræddi þessar frásagnir opinberlega. Hún lést 16. ágúst, tæpum þremur mánuðum síðar.

Það er hins vegar rétt að taka fram að opinberlega er ennþá ekkert sem tengir dauða Panettiere við þessar frásagnir eða ásakanir hennar. Dánarorsök hefur ekki verið tilkynnt og lögregla segir bráðabirgðarannsóknina ekki hafa sýnt merki um saknæmt athæfi eða grunsamlegar kringumstæður.

Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að á síðustu mánuðum ævi sinnar hafði Panettiere byrjað að tala mun opinskár um reynslu sína sem barnastjarna, það sem hún sjálf kallaði „grooming“, skort sinn á raunverulegu valdi til að segja nei og kynferðisleg atvik sem hún sagðist hafa lent í á unglingsárum sínum og sem ung kona í Hollywood.

Svipað samhengi vakti athygli eftir dauða Anne Heche

Andlát Panettiere hefur orðið til þess að umræður hafa skotið upp kollinum þar sem því er líkt við aðstæður í kringum dauða leikkonunnar Anne Heche árið 2022. Heche hafði skömmu áður lokið tökum á Lifetime myndinni Girl in Room 13, sem fjallaði um mansal og kynferðislega misnotkun.

Verkefnið tengdist málefni sem Heche hafði sjálf verið að rannsaka og tala um opinberlega. Eftir dauða hennar sagði leikstjórinn Elisabeth Röhm að Heche hefði verið sérstaklega áhugasöm um að vekja athygli á ofbeldi gegn konum í Hollywood og mansali tengdu því, meðal annars í ljósi þess að hún hafði sjálf nýlega greint opinberlega frá kynferðislegu ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir.

Eftir dauða Heche fóru jafnframt á kreik fullyrðingar um að hún hefði verið að vinna að rannsókn eða heimildarmynd um barnaníð í Hollywood og/eða Jeffrey Epstein. Engar traustar heimildir hafa þó staðfest þær fullyrðingar. Girl in Room 13 var leikin kvikmynd um mansal en ekki rannsókn á Epstein eða meintum barnaníðshring í Hollywood.

Samhengið er því að nokkru leyti sambærilegt við síðustu mánuði í lífi Panettiere. Báðar höfðu þær skömmu fyrir andlát sitt tekið þátt í opinberri umræðu um kynferðislegt ofbeldi í Hollywood, misnotkun og varnarleysi ungra kvenna.

Fleiri sambærileg tilfelli

Panettiere og Heche eru ekki einu manneskjurnar úr skemmtanaiðnaðinum sem hafa látist skömmu eftir að hafa rætt opinberlega um kynferðislegt ofbeldi eða misnotkun.

August Ames, 23 ára leikkona í fullorðinsmyndaiðnaðinum, opnaði sig árið 2017 um kynferðislegt ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir í bransanum. Hún lést innan við þremur mánuðum síðar og var dauði hennar úrskurðaður sjálfsvíg.

Anthony Bourdain varð áberandi stuðningsmaður #MeToo hreyfingarinnar eftir ásakanir Asia Argento á hendur Harvey Weinstein og talaði opinskátt um kynferðisofbeldi í bransanum og valdakerfi sem vernduðu gerendur. Hann lést um átta mánuðum síðar og var dauði hans úrskurðaður sjálfsvíg.

Isaac Kappy fór árið 2018 að saka þekkta einstaklinga í Hollywood opinberlega um barnaníð og tala um meintan barnaníðshring. Hann lést um níu mánuðum síðar.

Tekið skal fram að ekki hefur tekist að sanna tengsl dauða þessara aðila og þess að þau opnuðu sig um skipulagt kynferðisofbeldi og mansal í Hollywood.

 

 


#frá #hayden #kynferðisofbeldi #panettiere #sagði


Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/forsida/hayden-panettiere-sagdi-fra-kynferdisofbeldi-i-hollywood-skommu-fyrir-andlatid-fleiri-hafa-latist-skommu-eftir-ad-hafa-opnad-sig-um-kynferdisofbeldi-i-bransanum/

📰 Aðrar fréttir

Misjafnar skoðanir eftir orð Guðna: „Fleira undir sólinni en fiskur“
📅 18.08.2026 👁️ 0
Misjafnar skoðanir eftir orð Guðna: „Fleira undir sólinni en fiskur“
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, telur að Íslendingar verði að tryggja full yfirráð yfir sjávarauðlindinni strax í...
Svívirðileg brot gegn fósturbarni: Byrlaði 12 ára stúlku lyf og nauðgaði henni margsinnis
📅 18.08.2026 👁️ 0
Svívirðileg brot gegn fósturbarni: Byrlaði 12 ára stúlku lyf og nauðgaði henni margsinnis
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Manninum er gefið að sök að hafa um rúmle...
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði - Vísir
Baráttan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst er komin á fullt og skoðanakannanir benda til þess að mjótt geti orðið á mununum milli fylkinganna. Í...
Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í rað­húsi til sölu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í rað­húsi til sölu - Vísir
Um er að ræða 215,4 fermetra pallaraðhús, þar af 20,2 fermetra bílskúr, með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum auk gestasnyrtingar, stórum su...
Stolinn bíll fannst úti í á - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Stolinn bíll fannst úti í á - Vísir
Þetta segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni á Hverfisgötu, í samtali við Vísi. Bíllinn hafi verið mannlaus þegar lögreglu bar ...
Vilja bæta um­ferðar­flæði með hraðari snjallljósavæðingu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Vilja bæta um­ferðar­flæði með hraðari snjallljósavæðingu - Vísir
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins var lögð fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 12. ágúst og send skrifstof...
Man charged with sharing asylum seeker addresses in Thetford
📅 18.08.2026 👁️ 0
Man charged with sharing asylum seeker addresses in Thetford
The 62-year-old man is remanded in custody and will appear at Norwich Crown Court on 14 September.
Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjö­tíu prósent - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjö­tíu prósent - Vísir
Verð fyrir lífeyrisþega var áður ýmist 1.100 eða 1.190 krónur en verður eftir breytingar 1900 krónur fyrir hverja máltíð. Breytingin tekur gildi 1. se...
Er­lendir ríkis­borgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 0
Er­lendir ríkis­borgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Þjóðskrár. Þar segir að hlutfallið sé lægst í Kjósarhreppi, eða 5,3 prósent. Íbúar hreppsins eru 319 og þar...
„Ekki viljum við fara að leggja til íslenskt land til að auðvelda mönnum hernám Grænlands“
📅 18.08.2026 👁️ 0
„Ekki viljum við fara að leggja til íslenskt land til að auðvelda mönnum hernám Grænlands“
Stefán Pálsson, fulltrúi í miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga, segir mikilvægara en nokkru sinni fyrr að Ísland reyni að losa sig úr NATO. Aukin her...
Depp í við­ræðum um endur­komu sem Jack Sparrow - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Depp í við­ræðum um endur­komu sem Jack Sparrow - Vísir
Framleiðandinn Jerry Bruckheimer, sem hefur talað fyrir endurkomu Depp síðustu ár, greindi frá viðræðunum á Disney-viðburðinum D23 um helgina. „Við er...
Egill segir baðlón lúxus fyrir efnafólk – Bjarnheiður svarar: „Alveg stórmerkileg þessi andúð“
📅 18.08.2026 👁️ 2
Egill segir baðlón lúxus fyrir efnafólk – Bjarnheiður svarar: „Alveg stórmerkileg þessi andúð“
Fjörugar umræður fóru fram á Facebook-síðu fjölmiðlamannsins Egils Helgasonar í gær eftir að hann birti færslu um baðlón hér á landi og fyrirhugaða hæ...
Leavitt tók vandræðalegt myndband af Trump - „Þetta er stór bleyja held ég“
📅 18.08.2026 👁️ 2
Leavitt tók vandræðalegt myndband af Trump - „Þetta er stór bleyja held ég“
Umræður um heilsu Donald Trump Bandaríkjaforseta eru orðnar enn háværari eftir að Karoline Levitt, fráfarandi fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins birti, v...
Árni er tekjuhæstur á Íslandi
📅 18.08.2026 👁️ 2
Árni er tekjuhæstur á Íslandi
Árni er tekjuhæstur á Íslandi Árni Sigurðsson Mynd: Marel Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var tekjuhæsti Íslendingurinn árið 2025 samkvæ...
Verj­endur Davis segja ekkert að marka skjól­stæðing sinn - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Verj­endur Davis segja ekkert að marka skjól­stæðing sinn - Vísir
Réttarhöld yfir Davis hófust í gær en hann er hefur verið sakaður um að hafa lagt á ráðin um morðið á Tupac til að hefna fyrir árás rapparans og fylgd...
Narcan fannst þar sem Hayden Panettiere lést – Nágranni lýsir ringulreiðinni á vettvangi
📅 18.08.2026 👁️ 2
Narcan fannst þar sem Hayden Panettiere lést – Nágranni lýsir ringulreiðinni á vettvangi
Narcan-nefúði, sem notaður er til að vinna gegn áhrifum ofskömmtunar ópíóíða, fannst í íbúðinni þar sem bandaríska leikkonan Hayden Panettiere lést á ...
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu tók gleði sína á ný eftir mikið uppnám - „Núna er maðurinn þinn kominn með úrsala“
📅 18.08.2026 👁️ 2
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu tók gleði sína á ný eftir mikið uppnám - „Núna er maðurinn þinn kominn með úrsala“
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hófst í gær og heldur áfram í dag. Strax í gær varð ljóst að meðal mikilvægustu sönnunargagna í málinu eru upptökur úr s...
Aðalmeðferðin heldur á­fram í Reykholtsmálinu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Aðalmeðferðin heldur á­fram í Reykholtsmálinu - Vísir
Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hófst í gær. Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeld...
British couple killed in helicopter crash on Greek island of Sifnos, local media report
📅 18.08.2026 👁️ 2
British couple killed in helicopter crash on Greek island of Sifnos, local media report
The couple were on their honeymoon and were killed in the crash alongside their pilot, according to Greek media.
British couple on honeymoon killed in helicopter crash on Greek island of Sifnos
📅 18.08.2026 👁️ 2
British couple on honeymoon killed in helicopter crash on Greek island of Sifnos
The newlyweds, named as Alexander Cromie and Marie Ebert, were killed alongside their Greek pilot.
Meiri­hluti telur hitamet og gróðurelda vegna lofts­lags­breytinga - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Meiri­hluti telur hitamet og gróðurelda vegna lofts­lags­breytinga - Vísir
Gróðureldar hafa geisað víða um Evrópu í sumar og hvert hitametið fallið af öðru. Í tilkynningu um niðurstöður könnunarinnar frá Náttúruverndarsamtöku...
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram
📅 18.08.2026 👁️ 2
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram
Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða heldur áfram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hún hófst í gær þegar spilaðar voru upptökur úr síma Andra Más Mo...
Hayden Panettiere: Ex Wladimir Klitschko says family is in 'profound shock and grief'
📅 18.08.2026 👁️ 2
Hayden Panettiere: Ex Wladimir Klitschko says family is in 'profound shock and grief'
The former heavyweight boxing champion shares a child with the Heroes actress, who died on Sunday.
Kildare: Officers told not to pursue car on motorway
📅 18.08.2026 👁️ 2
Kildare: Officers told not to pursue car on motorway
The Garda Representative Association said officers were given a command to "disengage" with the car after it took "evasive action".
Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu - Vísir
 Panettiere lést á sunnudag, ekki er vitað um dánarorsök að svo stöddu en ekki er grunur um að andlát hennar hafi borið að með grunsamlegum hætti. Kay...
Nasistinn á alræmdu myndinni loks nafngreindur
📅 18.08.2026 👁️ 2
Nasistinn á alræmdu myndinni loks nafngreindur
Þýskum sagnfræðingi hefur tekist að varpa nýju ljósi á eina þekktustu ljósmynd helfararinnar og bera kennsl á nasista sem sést taka gyðing af lífi. Ta...
Þrjá­tíu börn getin á frjósemisstofu með ó­þekktum kynfrumum - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Þrjá­tíu börn getin á frjósemisstofu með ó­þekktum kynfrumum - Vísir
Um helmingur barnanna kom undir eftir meðferð á Dogus frjósemisstofunni, þar sem þrír einstaklingar komu að mörgum málanna; læknarnir Firdevs Uguz Tip...
Rándýrin rata til Finnlands
📅 18.08.2026 👁️ 2
Rándýrin rata til Finnlands
Rándýrin rata til Finnlands Hrein­dýra­bænd­ur í Finn­landi lýsa veru­leika sín­um við að reka norð­ur­slóða­bú­skap, þeg­ar reglu­gerð­ir Evr­ópu­sam...
Bandero dregið úr höfn og flutt til Akra­ness - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Bandero dregið úr höfn og flutt til Akra­ness - Vísir
Skipverjar Bandero voru handteknir um síðustu mánaðamót og skipið fært til hafnar. Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um bor...
Vatnshæð í sögulegu lágmarki í tveimur stærstu uppistöðulónum
📅 18.08.2026 👁️ 2
Vatnshæð í sögulegu lágmarki í tveimur stærstu uppistöðulónum
Tvö stærstu uppistöðulón í Bandaríkjunum hafa aldrei verið jafn vatnslítil og nú eftir mikla þurrkatíð í vesturhluta Bandaríkjanna. Loftslagsbreytinga...
Bjart og sólríkt víða en alldjúpar lægðir nálgast
📅 18.08.2026 👁️ 2
Bjart og sólríkt víða en alldjúpar lægðir nálgast
Í dag fjarlægist lægðin sem er búin að vera suður af landinu. Það lægir á sunnanverðu landinu þar en vindur verður almennt fremur hægur fyrir norðan. ...
Bjart og sól­ríkt víðast hvar - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Bjart og sól­ríkt víðast hvar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að lægðin sem hefur verið suður af landinu fjarlægist landið og þá eigi að lægja á suðurhelming...
Stór­glæsi­legt Sigvaldahús á sölu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Stór­glæsi­legt Sigvaldahús á sölu - Vísir
Björk Kristjánsdóttir stofnandi Made In Mountains og Óskar Ómarsson eru eigendur eigninnar sem er á eftirsóttum stað í póstnúmerinu 105. Húsið er teik...
Nýjasta hetja íslenska internetsins með skýra afstöðu til ESB kosninganna
📅 18.08.2026 👁️ 2
Nýjasta hetja íslenska internetsins með skýra afstöðu til ESB kosninganna
Samúel Guðmundsson, sem hefur á skömmum tíma orðið einn þekktasti Íslendingurinn á samfélagsmiðlum eftir samskipti sín við rabbínann Shmuley Boteach o...
Home-based palliative care is now available across the whole of Tenerife
📅 18.08.2026 👁️ 2
Home-based palliative care is now available across the whole of Tenerife
Tenerife's home palliative care programme has completed its island-wide rollout, meaning patients in all basic health districts can now access the spe...
Hættu við ADHD-greiningu vegna vímu­efna­neyslu barnsins - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Hættu við ADHD-greiningu vegna vímu­efna­neyslu barnsins - Vísir
Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að þeim hafi 10. júní borist kvörtun vegna málsins þar sem foreldrið krafðist þess að greiningaraðili myndi endurgr...
Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu - Vísir
📅 18.08.2026 👁️ 2
Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu - Vísir
Þá er Netanyahu sagður hafa ítrekað að aðgerðum yrði haldið áfram á Gasa. Kushner, sem er einn helsti samningamaður Bandaríkjaforseta í utanríkismálum...
Adeje and Mogan are in top 5 places for crime rate in all of Spain
📅 18.08.2026 👁️ 2
Adeje and Mogan are in top 5 places for crime rate in all of Spain
New crime figures reveal a striking contrast across the Canary Islands, with Adeje recording the second-highest rate of reported thefts in Spain, whil...
Job vacancies at five-year low as smaller firms scale back recruitment
📅 18.08.2026 👁️ 2
Job vacancies at five-year low as smaller firms scale back recruitment
Small firms cite labour and operating costs as reasons for scaling back hiring, the UK's statistics body says.
Almenningur fær greiðslur fyrir skotvopn sem þeir skila til yfirvalda
📅 18.08.2026 👁️ 2
Almenningur fær greiðslur fyrir skotvopn sem þeir skila til yfirvalda
Nýja Suður-Wales verður fyrsta ástralska ríkið sem kaupir skotvopn af almenningi. Danska ríkisútvarpið greinir frá.Forsætisráðherrann Anthony Albanese...
Man critically injured after head-on crash on TF-1 motorway in Tenerife
📅 18.08.2026 👁️ 2
Man critically injured after head-on crash on TF-1 motorway in Tenerife
Two men have been seriously injured in a head-on collision on Tenerife’s TF-1 motorway which left one vehicle overturned and another on fire in the ea...
Breskir drónar notaðir til langdrægra árása á Rússland
📅 18.08.2026 👁️ 2
Breskir drónar notaðir til langdrægra árása á Rússland
Stjórnvöld í Rússlandi vöruðu Breta við því í gær að þeir myndu gjalda fyrir drónaárásir með drónum sem framleiddir voru í Bretlandi en notaðir í árás...
Inside secret police warehouse as Germany targets small boats gangs
📅 18.08.2026 👁️ 2
Inside secret police warehouse as Germany targets small boats gangs
German authorities seize dinghies and life jackets during their first raids under a new law that cracks down on smuggling.
IVF staff accused of misleading UK parents about donors at northern Cyprus clinics
📅 18.08.2026 👁️ 2
IVF staff accused of misleading UK parents about donors at northern Cyprus clinics
Multiple children are feared to have been conceived using sperm and egg donors which were not the ones selected by the parents.
Vill varnaruppbyggingu á Íslandi
📅 18.08.2026 👁️ 2
Vill varnaruppbyggingu á Íslandi
Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, segir að staðsetning Íslands sé stratiskt mik...
Yfirhershöfðingi NATO vill herlið á Íslandi til lengri tíma
📅 18.08.2026 👁️ 2
Yfirhershöfðingi NATO vill herlið á Íslandi til lengri tíma
Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins og yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, segir að staðsetning Íslands sé stratiskt mik...
Dróninn sem var skotinn niður flaug frá Belarús
📅 18.08.2026 👁️ 2
Dróninn sem var skotinn niður flaug frá Belarús
Dróninn sem orrustuþotur skutu niður í Lettlandi á föstudaginn flaug inn í lettneskt loftrými frá Belarús. Varnarmálaráðherra Lettlands, Raivis Melnis...
Drónanum sem var skotinn niður var flogið frá Belarús
📅 18.08.2026 👁️ 2
Drónanum sem var skotinn niður var flogið frá Belarús
Drónanum sem orrustuþotur skutu niður í Lettlandi á föstudaginn var flogið inn í lettneskt loftrými frá Belarús. Varnarmálaráðherra Lettlands, Raivis ...
Tupac's murder was act of revenge, prosecutors allege in trial's opening day
📅 18.08.2026 👁️ 2
Tupac's murder was act of revenge, prosecutors allege in trial's opening day
After he was shot multiple times, Tupac Shakur refused to cooperate with police and told an officer, "We'll take care of it," an officer testified.
Hægt gengur að útvega heimilislausum húsnæði
📅 18.08.2026 👁️ 2
Hægt gengur að útvega heimilislausum húsnæði
Stjórnvöld í Venesúela segja að 6.438 hafi farist í jarðskjálftunum tveimur í júní. Björgunarfólk og almenningur leitar enn látinna í rústunum. Að min...