Framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984 vonar að starfsemi verði komin í samt lag í síðasta lagi á miðvikudag. Hann vill ekki fullyrða að Ísraelsmenn hafi staðið á bak við árásina – og það komi kannski aldrei í ljós.
Í dag, þremur dögum eftir að árásin lamaði starfsemi fyrirtækisins, var hún ekki enn komin af stað aftur, þótt hillti undir að tölvupóstþjónusta kæmist í lag, auk annars.
„Svo kannski á morgun, síðari hluta dags, verða vefirnir komnir upp, á ég von á – í síðasta lagi á miðvikudaginn. Þannig að í fyrri hluta þessarar viku verðum við komnir upp að öllu leyti,“ segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984 ehf.
Af öryggisástæðum fékk fréttastofa ekki að heimsækja 1984 og fylgjast með björgunaraðgerðum – og reyndar er það líka leyndarmál hvar fyrirtækið er yfirhöfuð til húsa.
Krefjandi dagar bóksala í jólavertíðinni
Árásin hafði áhrif á fjölda fyrirtækja, meðal annars bókabúðina Skáldu – og það mánuði fyrir jól.
„Þetta eru búnir að vera svolítið krefjandi síðustu dagar,“ segir Einar Björn Magnússon bóksali. Hann segir að sem betur fer reiði hann sig tiltölulega lítið á netsölu. Mest selji hann í búðinni sjálfri.
„En þetta tengist allt. Kassakerfið og vörukerfið eru allt tengd við netverslunina þannig að ég hef þurft að handskrá – skrifa bara niður í Excel – allar sölur hérna um helgina,“ segir hann.
„Og auðvitað er vont að komast ekki í tölvupóstinn. Ég fæ mikið af pöntunum og er að panta bækur inn á hverjum degi. Það er bara svolítið flókið,“ segir Einar Björn.
„Við látum ekki kúga okkur“
Árásin er til rannsóknar hjá Certis-netöryggissveitinni og Ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til umræðu hvort lýsa skyldi yfir almannavarnaástandi vegna árásarinnar, en niðurstaðan var að þess þyrfti ekki.
Mörður segir ljóst hvað tölvuþrjótunum gekk til.
„Upphaf árásarinnar gerir það augljóst. Þeir vildu taka niður vefi – skemma vefi – sem tengjast Palestínu,“ segir hann.
Sjö síður hafi verið eyðilagðar en hægt sé að bjarga þeim. Engin gögn hafi verið snert. Árás af þessari stærðargráðu sé líklega aðeins á færi þjóðríkis.
„Þetta er sennilega árás ríkis á okkar ríki og tjáningarfrelsi eins og við tíðkum það hér á landi.“
Ertu í rauninni að segja að þú teljir að Ísraelsríki hafi staðið að baki þessu?
„Nei, ég get ekkert fullyrt um það. Ég mun sennilega aldrei geta fullyrt neitt svoleiðis. Þessir skemmdarvargar skilja ekki eftir neinn nafnspjöld.“
Hafi tilgangurinn verið að fæla 1984 frá að hýsa tilteknar upplýsingar muni það ekki takast.
„Nehei, það mun ekki ... við tvíeflumst. Við látum ekki kúga okkur,“ segir Mörður.
Svefnlítill Mörður segist reyna að upplýsa viðskiptavini
Einar bóksali hefði þegið meiri upplýsingar frá hýsingarfyrirtækinu.
„Það er nú eiginlega verst, þótt ég hafi fullan skilning á þeim vandamálum sem þeir standa frammi fyrir þá er mjög lítil upplýsingagjöf frá þeim. Það væri gott að fá reglulega: Við erum að vinna í þessu, eða eitthvað svoleiðis. Þá veit maður bara að maður getur verið rólegur – gefa einhvern tímaramma,“ segir Einar.
Mörður segist reyna að þjónusta sína viðskiptavini eins vel og hann getur.
„Ég er búinn að sofa í níu og hálfan tíma frá því á föstudaginn. Það er af því að ég er búinn að vera að vinna allan tímann. Við reynum að koma á framfæri upplýsingum á Facebook-síðu fyrirtækisins. Við tölum við þig [fréttamann], til dæmis, hér. Við sendum út fréttatilkynningu fyrstu þrjá dagana og við reynum að gera eins vel og við getum,“ segir Mörður Áslaugarson.