Að sögn slökkviliðsins voru 25 manns með skráð lögheimili í fasteigninni og taldi það jafnframt að meirihluti þeirra væri af erlendum uppruna. Var þessi samsetning íbúa sögð valda slökkviliðinu „verulegum áhyggjum“, meðal annars vegna mögulegra tungumálaörðugleika þegar kæmi að björgunarstarfi.
Krafa slökkviliðsins byggði að verulegu leyti á fjölmiðlaumfjöllun um húsnæðið og myndefni sem þar birtist, að því er fram kemur í eldri úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Út frá þessu hafi slökkviliðið ályktað að íbúar hefðu ekki óhindrað aðgengi að nauðsynlegum flóttaleiðum, skortur væri á reykskynjurum, handslökkvitæki ekki tiltæk og ólíklegt að brunahólfun væri fullnægjandi.
„Af fyrirliggjandi uppdráttum af húsnæðinu bendi flest til að skipulagi innanhúss hafi verið breytt í þeim tilgangi að fjölga svefnrýmum og að leiða megi líkum að því að settir hafi verið upp fleiri veggir en séu á samþykktum teikningum og að þeir séu ekki brunahólfaðir,“ segir um málatilbúnað slökkviliðsins í úrskurði héraðsdóms.
Einnig byggði slökkviliðið kröfu sína á kvörtun til heilbrigðiseftirlits þar sem tilkynnandi fullyrti að hann hefði talið minnst nítján herbergi og að í sumum þeirra væru tveir leigjendur.
Slökkviliðið fór fram á að því yrði með dómsúrskurði veittur aðgangur að húsnæðinu til skoðunar, eftirlits og myndatöku í húsakynnunum. Eigandi fasteignarinnar hafnaði þessu, meðal annars með vísan til friðhelgi einkalífs íbúanna.
Ekki fullreynt að leysa utan dóms
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á að eigandi húsnæðisins hefði með öllu neitað slökkviliðinu um aðgang að húsnæðinu eða útilokað að hann yrði veittur. Það hafi til að mynda verið viðurkennt í kröfu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins að eigandi hafi samþykkt að veita aðgang að sameiginlegu rými húsnæðisins. Slökkviliðið taldi þetta ekki duga.
„Þá liggur fyrir í framlögðum gögnum að varnaraðilar óskuðu eftir fundi með sóknaraðila í tölvupósti 23. október sl. til að fara yfir stöðu málsins, en þeirri beiðni var svarað á þann veg að þótt sjálfsagt væri að hittast og fara yfir málið væri rétt að hinkra með fund þar til niðurstaða dómsins lægi fyrir,“ segir í úrskurði héraðsdóms sem slökkviliðið vísaði til Landsréttar.
Á þessum tíma hafi ekki verið búið að gera kröfu um úrskurð dómara um aðgang að húsnæðinu heldur hafi hún borist dómnum fjórum dögum síðar. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að á grundvelli meðalhófsreglu hefði slökkviliðið átt að fallast á fundarbeiðni eiganda og veita umbeðnar upplýsingar og gögn.
„Með því að gera það ekki hefur ekki verið fullreynt með samstarf við varnaraðila og þar með beitingu vægari úrræða en dómsúrskurðar. Er þetta verulegur annmarki á málsmeðferð sóknaraðila og í andstöðu við framangreindar meðalhófsreglur,“ segir í niðurstöðu héraðsdóms og var kröfu slökkviliðsins því vísað frá.
Skorti lagaheimild
Í kjölfar niðurstöðu héraðsdóms skaut Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins málinu til Landsréttar með kæru þann 12. nóvember síðastliðinn. Þar var farið fram á að úrskurður héraðsdóms yrði felldur úr gildi og lagt til að hann tæki málið aftur til efnismeðferðar.
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í úrskurði dagsettum 20. nóvember að slökkviliðið skorti heimild til að skjóta málinu til Landsréttar þar sem ekki væri heimild í brunavarnarlögum til að kæra úrskurði til dómstólsins sem kveðnir væru upp á grundvelli lagaákvæðis um heimild slökkviliðs til að krefjast aðgangs að húsnæði til skoðunar og eftirlits. Í ljósi þessa væri málinu vísað frá Landsrétti.