Landsréttur hefur vísað frá kæru Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um aðgang að íbúðarhúsnæði í Reykjavík til eldvarnaeftirlits.
Héraðsdómur hafði áður vísað kröfu slökkviliðsins frá dómi en þar krafðist slökkviliðið þess að fá með dómsúrskurði aðgang að fasteign þar sem grunur lék á að brunavarnir kynnu að vera í óreglu og að húsnæðinu hefði verið breytt frá samþykktum teikningum.
Héraðsdómur taldi að slökkviliðið hefði ekki fullreynt samstarf við eigendur fasteignarinnar áður en leitað var til dómstóla.
Landsréttur tók ekki efnislega afstöðu til beiðni slökkviliðsins um að fá aðgang að húsnæðinu.
Við meðferð kærunnar komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að lög um brunavarnir geymdu enga heimild til að kæra úrskurð héraðsdóms.
Slökkvilið hefur heimild til þess að fara inn í atvinnuhúsnæði án dómsúrskurðar en þarf slíkan úrskurð fyrir íbúðarhúsnæði. Því var veittur aðgangur að íbúðarhúsnæði í fyrsta skipti með dómsúrskurði vorið 2025.
Töldu 25 dvelja í smáum herbergjum
Í upprunalegri kröfu sinni um aðgang að húsnæðinu benti slökkviliðið á að sterkar vísbendingar væru um að stunduð væri leigustarfsemi í húsnæðinu þar sem leigð væru út stök herbergi með aðgengi að hreinlætis- og eldunaraðstöðu. Við uppflettingu hafi 25 verið skráðir með lögheimili í húsinu, þar með talinn leigusalinn. Af nöfnum þeirra hafi mátt draga þá ályktun að meirihluti leigjenda væri af erlendum uppruna.
Héraðsdómur benti meðal annars á að eigendur hefðu óskað eftir frekari upplýsingum og fundi um málið, en að slökkviliðið hefði ekki orðið við þeirri beiðni áður en krafan var lögð fyrir dóminn. Því hefði ekki verið sýnt fram á að vægari úrræði en dómsúrskurður hefðu verið fullreynd. Það væri í andstöðu við reglur um meðalhóf.
Eftir að héraðsdómur komst að sinni niðurstöðu kærði slökkviliðið hann til Landsréttar en málinu hefur verið vísað frá.
Í ábendingu sem barst til slökkviliðsins frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur kom einnig fram að talin hefðu verið 19 herbergi í húsinu og að í þeim væru ýmist einn eða tveir leigjendur.
Ekki tilbúinn að veita aðgang að öllu húsinu
Slökkvilið taldi að flest hefði bent til þess að skipulagi innanhúss hefði verið breytt í þeim tilgangi að fjölga svefnrýmum. Fleiri veggir hefðu verið settir upp en væru á samþykktum teikningum og að þeir væru ekki brunahólfaðir.
Grunur hafi einnig leikið á að brunavörnum hafi verið verulega áfátt í húsinu þar sem skortur hafi verið á reykskynjurum og handslökkvitæki ekki tiltæk.
Slökkviliðið hafði upphaflega óskað eftir aðgangi að eigninni í september. Sú beiðni var ítrekuð í sama mánuði. Eigendur samþykktu að veita aðgang að sameiginlegu rými en sú heimild var ekki talin nægjanleg.
Óskað var eftir fundi með slökkviliðinu en slökkviliðið vildi bíða með hann þangað til niðurstaða dóms lægi fyrir.
Eigandi fasteignarinnar taldi sig því ekki hafa hafnað kröfu um aðgang að húsnæðinu heldur hafi lögmaður hans tjáð slökkviliðinu að samþykki yrði ekki veitt að svo stöddu.
Óskað hafi verið eftir gögnum sem krafa slökkviliðsins byggði á en þau ekki verið veitt að sögn leigusalans. Þá var eigandinn ekki tilbúinn að hleypa slökkviliðinu inn í þann part hússins sem væri í hans eign og hann hefði afnot af.