Kvöldverðargestur sem varð vitni að hegðun söngkonunnar Britney Spears á veitingastað í Los Angeles lýsti „erfiðu“ kvöldi poppstjörnunnar í viðtali við Page Six.
Í viðtalinu segir Jeff Sneider að hann og vinur hans hafi mætt á Blue Dog Tavern í Sherman Oaks um klukkan 19 á miðvikudagskvöld. Stuttu síðar gekk kona inn, hulin á bak við sólgleraugu, ásamt tveimur vinkonum og segist Sneider ekki hafa gert sér strax grein fyrir að þarna væri Britney á ferð.
„Konan settist niður og byrjaði að gefa frá sér mikið af gelti eða öskrandi hljóðum og hún var bara með læti,“ fullyrti hann. „Það var ekki fyrr en hún tók af sér sólgleraugun að við áttuðum okkur á að þetta væri Britney Spears.’“

Sneider, sem hefur verið fréttamaður um málefni fræga fólksins í 20 ár, hélt því fram að Spears hefði „haldið áfram að standa upp og setjast niður og hreyfa sig um veitingastaðinn.“ Hann hélt einnig fram að á einum tímapunkti, þegar hún stóð upp, hefði hún hugsanlega „gleymt að setja niður borðbúnaðinn sinn“ og haldið á hníf.
„Mér var ekki hótað eða neitt þess háttar,“ útskýrði hann. „En þegar hún loksins fór, sneri ég mér við og sagði: „Guð minn góður þetta var brjálæði!“.“
Sneider segir jafnframt að kona sem var í hans hópi hefði fundist sér ógnað og sagt um Britney: „Hún var með hníf og kom að mér. Ég hélt að hún ætlaði að stinga mig.“
Þótt Sneider telji ekki að Britney hafi haft nein ofbeldisfull áform, sagði hann að það hefði verið mjög óþægilegt að sitja við hlið hennar þetta kvöld. Segir hann vinkonur Britney hafa reynt að róa hana og fá hana til að sitja kyrr allt kvöldið, án árangurs.

Sneider segist ekki hafa vör við að Britney drykki áfengi, en hún lauk nýlega meðferð, hins vegar hefði hún á einum tímapunkti kveikt sér í sígarettu og þjónarnir þurftu að biðja hana um að drepa í henni. Segir Sneider Britney hafa krafsað í mat sinn, hamborgara og franskar, og að hún og lífvörður hennar hefðu matað hvort annað á frönskum.
„Ég fékk aldrei þá tilfinningu að þau hefðu verið beðin um að fara,“ sagði hann og bætti við að mikið af mat hefði verið eftir á borðinu og undir því og allt í óreiðu eftir Britney.
„Hún var í slæmu ástandi og það var erfitt fyrir mig og vinkonu mína að halda uppi samræðum.“
„Þetta er algjörlega út í hött. Britney var að njóta rólegs kvöldverðar með aðstoðarmanni sínum og lífverði. Hún var einfaldlega að segja söguna af því hvernig hundurinn hennar var að gelta á nágrannana,“ sagði fulltrúi Britney í yfirlýsingu í gær. „Hún setti engan í hættu með hníf á neinum tímapunkti. Hún var að skera hamborgarann sinn í tvennt.“
Vefurinn TMZ var fyrstur til að greina frá óstöðugri hegðun Britney í gær og hafði eftir einum gesti staðarins að Britney hefði gengið fram hjá borði þeirra með hníf, sem vakti ótta þeirra um að hún gæti meitt einhvern.