Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði sjö manns í nótt fyrir að aka um miðborg Reykjavíkur á nagladekkjum.
Í morgunskeyti lögreglunnar segir að lögregla sé loks búin að fá sig fullsadda af notkun slíkra hjólbarða.
Lögreglumenn fóru í útkall vegna gruns um að innbrotsþjófur væri að verki í heimahúsi en sá reyndist gestur sem nágranninn sem tilkynnti kannaðist ekki við. Innbrot í veitingahús í úthverfi er til rannsóknar. Að öðru leyti segir lögregla nóttina hafa verið rólega. Einn gisti fangageymslur í morgun.