Íbúar í og nærri finnsku höfuðborginni Helsinki voru um tíma hvattir til að halda sig innandyra. Finnska ríkisútvarpið greindi frá þessu á vef sínum og sagði talið að hætta gæti stafað af flygildinu.
Opnað hefur verið fyrir flugumferð um Vantaa-flugvöll við Helsinki eftir að henni var um tíma beint til Rovaniemi, Arlanda í Stokkhólmi og Tallin, höfuðborgar Eistlands. Flug- og sjóher voru í viðbragðsstöðu þótt ekki væri talið að bein hernaðarógn blasti við Finnlandi.
Nokkrar orrustuþotur voru sendar á loft til öryggis. Forsætisráðherrann Petteri Orpo þakkaði öllum hlutaðeigandi skjót viðbrögð og innanríkisráðherrann Mari Rantanen sagði öllum óhætt að fara til vinnu og skóla.
Fyrr í nótt greindu flugmálayfirvöld í Lettlandi frá mögulegu rofi á lofthelgi landsins. Íbúum austanvert í landinu var ráðlagt að halda sig inni og tilkynna um dularfulla flugumferð.
Varnarmálaráðuneytið sagði flugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins hafa verið sendar á loft til eftirlits. Slík truflun geti orðið svo lengi sem atlögum Rússlands að Úkraínu linnir ekki, að sögn ráðuneytisins.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum um að hættan væri talin afstaðin og viðbrögðum finnskra ráðamanna.