Nærri 30.000 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar – rúmlega 36% aukning frá sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2022. Kjördagur er á morgun en atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 17. apríl.
Aðsókn hefur verið mikil hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Yfir 3.000 greiddu atkvæði sitt þar í gær og álíka margir dagana þar á undan – alls um 17.500 frá því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst. Það er 38% aukning frá því á sama tíma í sveitarstjórnarkosningunum 2022.
Hægt er að greiða atkvæði hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu til klukkan 21:00 í kvöld og klukkan 10:00 til 17:00 á morgun.
Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, segir þá sem ekki komist í sína kjördeild á morgun, kjördag, geta greitt atkvæði á skrifstofu sýslumanns í Kópavogi en að þeir beri sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila í sína kjördeild.