Réttarhöld yfir Vikrum Digwa standa nú yfir í Southampton á Englandi. Digwa, sem er 23 ára og Sikh trúar, er sakaður um að hafa banað 18 ára háskólanema með hnífi, en Digwa réttlætti verknaðinn meðþví að halda því fram að hann hefði orðið fyrir kynþáttaníði.
Hinn látni, Henry Nowak, var nemi í fjármálum og bókhaldi við Southampton háskóla. Hann var á leið heim eftir kvöldstund með vinum sínum í desember árið 2023 þegar hann varð fyrir árásinni.
Samkvæmt saksóknurum var Digwa, 23 ára, vopnaður svokölluðum Shastar hnífi, sem er stærri tegund af þeim hnífum sem Sikhar mega bera af trúarlegum ástæðum.
Ákærður fyrir morð – móðir hans einnig ákærð
Digwa er ákærður fyrir morð en móðir hans, Kiran Kaur, 53 ára, er sökuð um að hafa aðstoðað hann eftir verknaðinn. Saksóknarar segja hana hafa farið á vettvang morðsins og tekið hnífinn með sér heim þar sem hún hafi svo falið hann í því sem virtist vera einskonar vopnabúr fjölskyldunnar.
Bæði neita sök.
Fyrir dómi kom fram að Henry hefði verið að streyma beint á netinu þegar hann rakst á Digwa um miðnætti. Á myndskeiði úr síma Henrys heyrist hann meðal annars segja við Digwa:
„Þú ert vondur maður, segðu að þú sért vondur maður.“
Digwa svaraði þá:
„Ég er vondur maður.“
Stuttu síðar lauk upptökunni.
Reyndi að flýja
Saksóknari málsins sagði að Henry hefði verið stunginn margsinnis og reynt að flýja með því að klifra yfir girðingu, en Digwa hafi elt hann. Blóðslóð hafi verið eftir götunni.
Þegar lögregla mætti á vettvang hélt Digwa því fram að hann hefði orðið fyrir kynþáttaníði. Samkvæmt saksóknara handjárnaði lögregla Henry eftir ásakanirnar þrátt fyrir að hann væri þakinn eigin blóði. Eftir nokkurn tíma áttuðu lögreglumennirnir sig á alvarleika áverkanna og hófu skyndihjálp.
Henry lést skömmu síðar, liggjandi í handjárnum á götunni.
„Hann drukknaði í eigin blóði eftir að hafa verið stunginn í lungað,“ sagði saksóknarinn en Henry var með fjögur alvarleg stungusár.
Segir um sjálfsvörn að ræða
Verjandi Digwa heldur því fram að skjólstæðingur hans hafi brugðist við í sjálfsvörn og í „hita augnabliksins“.
Hann sagði einnig að hnífurinn gæti fallið undir trúarlega undanþágu sem menn sem eru Sikh trúar njóta, þar sem karlar beri gjarnan svokallaðan Kirpan hníf vegna trúar sinnar. Saksóknari sagði hins vegar að Digwa hafi verið með minni útgáfu af slíkum trúarhníf um hálsinn sem uppfyllti trúarlegar skyldur hans og að stærri hnífurinn hafi verið ólöglegur.
Símtal í lögreglubíl vekur athygli
Fyrir dómi kom einnig fram að samtal milli Digwa og bróður hans hafi náðst á upptöku í lögreglubíl eftir handtökuna. Samkvæmt saksóknara sagði Digwa þar að hann hefði stungið Henry þrisvar sinnum. Þar hafi ekkert verið minnst á kynþáttaníð eða sjálfsvörn.
Réttarhöldin standa enn yfir.