Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði. Burnham greindi breska þinginu í dag frá efni samkomulags sem Bretar gerðu við Evrópusambandið fyrir helgi og svaraði spurningum.
Það felur meðal annars í sér að tollskoðun útflutnings á meirihluta breskra matvæla verður hætt. Í staðinn ætla bresk stjórnvöld að innleiða tilskipanir Evrópusambandsins sem snúa að hollustuháttum.
Til stendur að auðvelda ungu fólki frá Bretlandi að stunda nám eða vinnu í Evrópu og öfugt. Bretar ætla að taka þátt í losunarbókhaldi Evrópusambandsins og fá í staðinn tolla afnumda á hluta af útflutningi áls og stáls.
Þá ætla löggæsluyfirvöld beggja vegna Ermarsunds að deila meiri upplýsingum sín á milli og vinna saman að því að stemma stigu við mansali og starfsemi smyglara sem flytja fólk ólöglega á milli landa.
Burnham segir næsta áratug geta orðið betri fyrir Bretland heldur en þann síðasta, þökk sé nýja samkomulaginu. Það feli í sér verulegan ávinning fyrir Breta, meðal annars lægra orkuverð. Hann sagði áhrif samkomulagsins á breskt efnahagslíf geta numið 17 milljörðum punda á ári, eða sem samsvarar um 2.800 milljörðum króna.
Sakar Burnham um að gera Breta að þiggjendum Evrópureglugerða
Það eru ekki allir á eitt sáttir við ákvörðun Burnhams um að vekja aftur upp samband Bretlands og ESB. Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, segir það svik við breskan almenning.
Kemi Badenoch leiðtogi Íhaldsflokksins segir samninginn ekki sanngjarnan. Burnham hafi samþykkt að gera Bretland að þiggjanda reglugerða frá Brussel. Hann hafi ekki haft neitt umboð til að gera það.
Burnham svaraði ræðu Badenoch með þeim orðum að Íhaldsflokkurinn hefði sagt skilið við Evrópusambandið án þess að hafa gert áætlanir um hvernig hægt væri að tryggja vöxt efnahagslífsins. Stjórn Verkamannaflokksins þyrfti að glíma við afleiðingarnar.