Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf í dag rannsókn á Coca-Cola Europacific Partners (CCEP). Grunur leikur á að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með þeim afleiðingum að neytendur hafi þurft að borga hærra verð fyrir gosdrykki sína en ella.
Til skoðunar er hvort átöppunarfyrirtækið hafi brotið samkeppnisreglur ESB, meðal annars með því að standa í vegi fyrir flutningi gos- og íþróttadrykkja milli landa sambandsins. Auk þess er til skoðunar hvort fyrirtækið hafi breytt stærðum á drykkjarumbúðum milli markaða til að gera viðskipti milli landa flóknari og hvort fyrirtækið hafi borgað heildsölum fyrir að takmarka innflutning gosdrykkja til Spánar, að því er segir í frétt Politico.
Teresa Ribera, framkvæmdastjóri sambandsins á sviði samkeppnismála, segir í yfirlýsingu að rannsóknin snúi að mögulegum hindrunum sem fyrirtækið hafi lagt í veg smásölufyrirtækja. Þeim hafi þannig verið gert erfiðara fyrir að kaupa drykki á hagstæðasta verði í öðrum löndum.
Dreifa Coca-Cola í mörgum löndum Vestur-Evrópu
CCEP er annað af tveimur fyrirtækjum sem framleiða Coca-Cola í Evrópu. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Bretlandi en það selur drykki í mörgum löndum í vesturhluta Evrópu, þar á meðal á Íslandi, í Eyjaálfu, Indónesíu og á Filippseyjum.
Evrópuráðið segir að með samningagerð við stórmarkaði og smásöluverslanir gæti CCEP hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Til skoðunar sé hvort fyrirtækið hafi lofað verslunum lægra heildsöluverði í skiptum fyrir að drykkirnir yrðu ekki seldir til annarra Evrópulanda.
Fyrirtækið er einnig sakað um að hafa neitað að semja við verslanakeðjur um kaup til verslana í mörgum ólíkum löndum. Þess í stað hafi CCEP krafist þess að gera viðskiptasamninga sem náðu aðeins til eins lands í einu.
Þetta gæti hafa leitt til hærra vöruverðs og lakara úrvals fyrir neytendur, að sögn Ribera. „Fólk á ekki að þurfa að borga meira fyrir drykki bara vegna þess að það býr í einu Evrópusambandsríki en ekki öðru.“
Gæti verið sektað um 10% af árlegri veltu
Í yfirlýsingu frá CCEP segir að innan fyrirtækisins séu samkeppnislög tekin mjög alvarlega. Áfram verði brugðist við brugðist við fyrirspurnum Evrópuráðsins.
Ráðið hefur nú þegar skorið upp herör gegn viðlíka viðskiptaháttum. Matvælarisinn Mondelez var sektaður um rúmlega 337 milljónir evra árið 2024 fyrir að standa í vegi fyrir sölu á sætindum, kexi og kaffi þvert yfir landamæri.
Húsleitir voru gerðar á nokkrum starfsstöðvum CCEP í mars í fyrra. Fyrirtækið gæti verið sektað um upphæð sem nemur 10% af ársveltu ef brotin teljast sönnuð.