Thomas Markle var í gær formlega ákærður af kviðdómi í Kaliforníu fyrir tvö brot sem varða vörslu barnakláms. Búist er við því að hann verði leiddur fyrir dómara við alríkisdómstól í Los Angeles á næstu vikum.
Í ákærunni kemur fram að Markle hafi átt í fórum sínum filmur sem sýndu kynferðisofbeldi gagnvart börnum, þar á meðal að minnsta kosti eina mynd af barni sem var ekki komið á kynþroskaskeið.
Saksóknarar sem reka málið gegn Markle segja að alríkislögreglan hafi lagt hald á tugi mynda á skyggnum, eða slides-myndum, á filmum og í bókum. Að minnsta kosti tvær myndir sýna Markle sjálfan ásamt börnum sem eru annaðhvort nakin eða fáklædd.
Upp komst um barnaníðsefnið þegar Thomas Markle yngri fann það á fyrra heimili föður síns á Filippseyjum. Hann tilkynnti fundinn til lögreglunnar, bæði á Filippseyjum og í Bandaríkjunum.
Í dómsskjölum kemur fram að Markle hafi einnig geymt ljósmyndir í tveimur leigugeymslum í Los Angeles.
Hélt að málið væri til rannsóknar
Thomas Markle er faðir Meghan Markle, eiginkonu Harrys Bretaprins hertogaynjunnar af Sussex, og hefur samband þeirra oft og tíðum verið stirt.
Eftir að fregnir bárust af málinu gaf Meghan Markle út yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa séð bréf árið 2018 þar sem greint var frá „óhugnanlegum ásökunum“ á hendur föður hennar. Hún hafi í kjölfarið skorið á öll tengsl við hann og ekki vitað betur en að málið væri til rannsóknar.