Í lok síðasta mánaðar bárust fregnir af því að Bukele hefði sent um þúsund hermenn til Haítí í flýti. Það var eftir að fjórir menn frá El Salvador sem voru að taka þátt í öryggisverkefni Sameinuðu þjóðanna týndust eftir umsátur glæpamanna í Port au Prince, höfuðborg landsins.
Sjá einnig: Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur
Nú er talið að hermennirnir séu um 2.500 talsins. Týndu hermennirnir hafa ekki fundist enn.
Forsetinn birti langa færslu á samfélagsmiðlum í dag þar sem hann opinberaði nöfn hermannanna þriggja sem dóu og hvernig dauða þeirra bar að garði.
Bukele sagði að þeir hefðu reynt að fjarlægja handsprengju af dróna sem var að verða rafmagnslaus síðastliðinn föstudag. Ekki hefði verið hægt að fljúga honum á brott. Sprengjan sprakk hins vegar og þrír hermenn dóu.
Einn þeirra hét Cristian Daniel Palacios Santos og var lautinant. Bukele segist hafa orðið persónulega vitni að hetjudáð hans eftir að málaliðar, sem forsetinn nefnir ekki, hafi hörfað. Þá hafi Palacios Santos tekið stjórn á stöðunni og bjargað þó nokkrum lífum, þar á meðal lífum annarra hermanna.
„Ég man að ég hugsaði þá: „Þessi ungi maður á eftir að ná langt. Hann hefur alla hæfileika leiðtoga.“ Ég gat ekki ímyndað mér að skömmu síðar væri hann meðal þeirra sem létu lífið af slysförum.“
Hoy quiero hablarles de tres héroes salvadoreños que perdieron la vida mientras cumplían una misión lejos de nuestra patria. Tres miembros de nuestra Fuerza Armada que viajaron a Haití con un propósito: rescatar a cuatro de sus compañeros que habían sido secuestrados por pandillas haitianas. Lamentablemente, una explosión accidental durante esa misión les arrebató la vida. Sus nombres son: el teniente Cristian Daniel Palacios Santos, el cabo Emerson Alexander Zepeda Zelada y el cabo Wilber Manuel Serrano Medina. Conocí de primera mano la valentía del teniente Palacios Santos. Durante un operativo, en un momento crítico en el que unos contratistas privados abandonaron sus posiciones, el teniente tomó el control de la situación y actuó con rapidez y determinación, logrando salvar varias vidas, entre ellas las de sus propios compañeros. Todos aplaudimos su valentía. Recuerdo que en ese momento pensé: “Este muchacho llegará lejos. Tiene todo el temple y la capacidad de un líder”. Jamás imaginé que, poco tiempo después, estaría entre los fallecidos en un accidente. También me informaron del extraordinario valor de los cabos Zepeda Zelada y Serrano Medina. Durante unas pruebas en El Salvador, una granada quedó atorada en un dron. La batería estaba por agotarse y no era posible dirigirlo hacia una zona completamente segura para que se estrellara. Serrano Medina sostuvo el dron a aproximadamente un metro y medio del suelo mientras Zepeda Zelada desactivaba manualmente la granada. Sabían perfectamente el inmenso riesgo que estaban corriendo, pero aun así decidieron actuar para proteger a los demás. Y lo lograron. Estas no son simplemente historias sobre tres héroes. Son acciones que nos permiten entender quiénes eran estos hombres: militares capaces, valientes y comprometidos con una misión que siempre pusieron por encima de su propia seguridad. Varias veces he dicho que siempre he admirado a las personas que deciden dedicar sus vidas a salvar las de otros. Porque hay algo extraordinario en ellas. Algo que no es natural, que no es común, que no es normal. Todos los seres humanos tenemos una reacción instintiva ante el peligro. Si vemos un peligro, huimos de él. Si hay un incendio, corremos y tratamos de alejarnos. Pero un bombero no huye del incendio, hace lo contrario, lo que casi nadie más haría, y en lugar de huir del incendio, corre hacia él, arriesga su vida, camina entre las llamas si es necesario para salvar a los demás. Eso no es algo normal, es algo extraordinario. Si escuchamos una balacera, nuestro instinto es huir de los disparos, buscar refugio, mantenernos alejados. Pero un policía hace lo contrario. Ellos no huyen de los disparos como haríamos todos, van hacia ellos, sacan su pistola y corren hacia el peligro para salvar a los que están en él. Eso no es algo normal, es algo extraordinario. Lo vimos con los rescatistas que enviamos a Venezuela, salvadoreños abriendo túneles en estructuras inestables que podrían colapsar en cualquier momento. Nuestro instinto natural es huir de un edificio que se desmorona, pero nuestros rescatistas hacían lo contrario: entraban a esas estructuras, sabiendo que podían morir ahí adentro, para salvar a quienes estaban atrapados. Eso no lo haría casi nadie, mucho menos por un desconocido, pero ellos sí, porque los rescatistas, al igual que los policías, bomberos y militares, reaccionan de una manera totalmente diferente a todos los demás. Ellos no huyen del peligro, van hacia él. Eso es difícil de entender para la gente normal, pero ellos no son gente normal, son gente extraordinaria. Cuando los demás retroceden, ellos avanzan. Sabiendo perfectamente que eso puede costarles la vida misma. Y no es que no tengan miedo, es que hay algo más fuerte que ese miedo: su deseo de salvar a los demás. Esa es la vocación que mueve a nuestros militares, a nuestros policías, bomberos y rescatistas. Personas que han decidido dedicar sus vidas a proteger la de los demás…
— Nayib Bukele (@nayibbukele) November 23, 2026
Forsetinn segir að ef einhverjir hermenn vilji snúa aftur heim frá Haítí sé það í góðu lagi. Þeim verði ekki refsað á nokkurn hátt, enda séu mun fleiri hermenn sem hafi áhuga á að fara.
Hermennirnir vinsælir
AP-fréttaveitan segir að sérfræðingar og starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafi áhyggjur af því hvernig hermenn El Salvador starfa án samráðs við aðra. Einhverjir hafi áhyggjur af því.
Íbúar Haítí segjast þó ánægðir með viðveru hermannanna þar. Miðillinn Le Nouvelliste segir að ríkisstjórn Haítí hafi skrifað undir varnarsáttmála við El Salvador. Hermennirnir beiti sér sérstaklega gegn glæpamönnum í Port au Prince.
Harðir bardagar hafa geisað víða um borgina og í nærliggjandi bæjum og þorpum, samkvæmt Le Novuvelliste. Alþjóðleg sveit Sameinuðu þjóðanna hefur einnig gert árásir gegn glæpamönnum og hafa hermenn frá Kenía fallið í átökunum.
Glæpamenn stjórna stórum hluta landsins og hafa gert um nokkurt skeið. Óreiðan á Haítí hefur í þó nokkur ár verið gífurlega mikil og eru hömlulaus glæpagengi orðin gífurlega öflug. Í mörgum tilfellum eru þessi gengi bæði fjölmennari og betur vopnum búin en lögreglan.
Er það vegna þess að stjórnmálamenn hafa í gegnum árin dælt peningum í mismunandi gengi og beitt þeim gegn pólitískum andstæðingum sínum.
Óreiðan náði nýjum hæðum eftir að Jovenel Moise forseti var myrtur árið 2021. Moise var einkar óvinsæll forseti og var sakaður um einræðistilburði. Degi áður en hann dó skipaði hann sinn sjöunda forsætisráðherra á kjörtímabili sínu.
Yfirvöld á Haítí hafa leitað til erlendra málaliða til að sporna gegn gengjunum, auk þess sem Sameinuðu þjóðirnar leiða alþjóðlegt verkefni þar. Umræddir málaliðar hafa notast við sjálfsprengidróna gegn glæpamönnunum og hafa heimamenn kvartað yfir mannfalli meðal óbreyttra borgara í þessum árásum.
Vinsæll heima fyrir vegna baráttu gegn glæpagengjum
Bukele er einungis 45 ára gamall og situr nú sitt annað kjörtímabil í El Salvador. Hann var fyrst kjörinn til embættis árið 2019 með loforðum um að uppræta landlæga spillingu og draga úr glæpum. Hann bauð sig aftur fram 2024, þrátt fyrir að stjórnarskrá El Salvador segði að forseti mætti ekki sitja tvö kjörtímabil samfleytt.
Forsetinn og bandamenn hans skipuðu nýja dómara í hæstarétt ríkisins sem komust að þeirri niðurstöðu að stjórnarskráin hefði verið rangtúlkuð og að forsetar mættu sitja lengur. Kosningarnar vann hann svo með miklum yfirburðum.
Hann hefur sjálfur titlað sig sem „flottasta einræðisherra heimsins“.
Flokkur hans gerði í fyrra breytingar á stjórnarskrá landsins sem felldu úr gildi takmarkanir á fjölda kjörtímabila sem forsetar mega sitja og kjörtímabilið var lengt úr fimm árum í sex.
Sjá einnig: Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador
Bukele hefur verið nokkuð umdeildur í embætti. Skömmu eftir að hann tók við embætti kom hann á herlögum, sem eru enn í gildi, vegna baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi sem hefur lengi leikið íbúa El Salvador grátt.
Síðan hann greip til þessara aðgerða hafa þúsundir ungra manna verið fluttir í fangelsi án dóms og laga og lögreglan og herinn hafa verið sakaðir um ofbeldi.
Forsvarsmenn mannréttindasamtaka í landinu hafa hætt starfsemi og segja það vegna ógnana og lögsókna frá ríkisstjórn Bukeles.
Glæpatíðni hefur þó lækkað og Bukele nýtur talsverðra vinsælda heima fyrir á þeim grunni.