Þegar hafa verið fram lagðar fram á þriðja tug umsagna um frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um útlendinga, sem nú er til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Athugasemdirnar eru flestar frá fólki frá löndum utan EES sem býr á Íslandi. Flestir gera grein fyrir sínum persónulegu aðstæðum í umsögnunum. Aðstæður fólksins eru misjafnar og því eru mismunandi atriði í frumvarpinu gagnrýnd í umsögnunum.
Útlendingar á Íslandi afar ósáttir við frumvarp Þorbjargar - Ótækt sé að breyta reglunum eftir á