Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur hlotið níu ára fangelsi fyrir að smygla tæpum 43 kg af kókaíni í Renault Trafic-bifreið með Norrænu í mars á þessu ári. Katsanos var handtekinn við komu til landsins á Seyðisfirði.
Styrkleiki efnanna var 83-85% og voru þau ætluð til sölu í ágóðaskyni. Þetta var mesta magn kókaíns sem hafði verið flutt til landsins, en metið var svo slegið í sumar þegar rúm 100 kíló fundust í skipi í Straumsvík.
Katsanos neitaði sök fyrir dómi og krafðist sýknu. Dómari við Héraðsdóm Austurlands mat framburð hans bæði ótrúverðugan og misvísandi.
Sagðist vera að vinna fyrir Caterpillar en ódýr verkfæri vöktu grunsemdir
Tollverðir skoðuðu bifreið hans við komuna á Seyðisfjörð og tóku eftir upphækkuðum botni í henni. Katsanos kvaðst ekki hafa vitað af hólfinu í bílnum og hvað þá af fíkniefnunum. Hann teldi að þau hefðu annaðhvort verið þar þegar hann keypti bílinn eða þeim verið komið fyrir í honum án hans vitneskju.
Katsanos gaf margvíslegar skýringar á ferðum sínum og á þeirri staðreynd að hann eyddi gögnum úr síma sínum á meðan tollverðir gerðu leit í bílnum.
Bifreiðin og Katsanos voru bæði merkt fyrirtækinu Caterpillar og kvaðst hann vera kominn til Íslands til að gera úttekt á fyrirtækinu Kletti, sem væri umboðsaðili Caterpillar á Íslandi. Þegar tollgæslan leitaði upplýsinga hjá Kletti kannaðist enginn við það. Að lokum sagði maðurinn að bifreiðin væri í hans eigu en ekki Caterpillar.
Maðurinn gaf tollvörðum og lögreglu mjög misvísandi og breytileg svör um hvaða störf hann átti að vinna fyrir Caterpillar hér á landi og gat ekki veitt nein gögn um starfsráðninguna.
Sjálfur sagðist hann aðallega hafa verið í samskiptum við Caterpillar í gegnum síma. Þá sagði maðurinn að hann fengi greitt í reiðufé frá Caterpillar sökum þess að háir skattar væru í Þýskalandi en hann kvaðst búa þar og í Grevena í Grikklandi.
Katsanos hafði með sér verkfæri sem hann sagði til komin vegna vinnu sinnar hér á landi en mat lögreglu og tollvarða var að verkfærin væru ekki af sömu gæðum og vanalega væri hjá fagmönnum.
Eyddi gögnum af síma sínum
Síðar breyttist saga hans og sagðist hann hafa komið til Íslands til að sækja um starf hjá Kletti þar sem hann væri mikill áhugamaður um Caterpillar. Sækjandi í málinu benti aftur á móti á að Katsanos hefði átt heimferð bókaða með Norrænu viku eftir komuna til Íslands.
Þá bar Katsanos einnig fyrir sig tungumálaörðugleika sem hefðu valdið misskilningi í samskiptum við tollverði og lögreglu. Hann hefði orðið stressaður þar sem hann hefði áður fengið upplýsingar frá vini sínum um að mögulega myndu verkfæri hans vera gerð upptæk. Því væri öruggast að segjast vinna fyrir viðurkennt fyrirtæki líkt og Caterpillar.
Hann neitaði í fyrstu að hafa logið að tollvörðum en játaði að lokum og sagðist hafa gert það þar sem hann væri hræddur um að þeir myndu taka af honum verkfærin. Hann viðurkenndi einnig að hann hefði eytt gögnum úr síma sínum með því að setja hann á grunnstillingu (factory reset).
Katsanos sagðist hafa eytt gögnunum þar sem hann og annar Grikki hefðu verið í samfloti til Íslands. Sá hefði verið tekinn til athugunar af tollvörðum á undan honum og sjálfur hefði hann orðið hræddur þegar hann sá það. Hann hefði ekki viljað að þeir yrðu tengdir saman á nokkurn hátt.
Ferðaðist vítt og breytt um Evrópu fyrir handtökuna
Í ljós kom við rannsókn lögreglu að Katsanos hafði frá janúar 2025 þangað til í mars 2026 eytt alls 12 þúsund evrum í ferjumiða frá Grikklandi til Ítalíu. Sjálfur sagðist hann hafa ferðast mikið um Evrópu í leit að vinnu. Sama hafði hann að segja um kaup á flugmiðum fyrir um 5.000 evrur á sama tímabili.
Til útskýringar á því hvernig fíkniefni komust í bílinn sagði maðurinn að hann hefði oft lánað bíl sinn á meðan hann dvaldi á Grikklandi. Nokkur fjöldi fólks hefði fengið bílinn lánaðan, til dæmis til þess að flytja húsgögn eða verkfæri.
Í framburði lögreglumannsins sem stýrði rannsókn málsins kom fram að lögregla teldi sig sjá ákveðið mynstur í ferðum Katsanos. Honum hefðu verið skammtaðir peningar til ferðanna, sem væri einkennandi fyrir fíkniefnasmygl. Sjálfur sagði hann að aðrir geymdu peninga hans svo hann gæti komist hjá því að greiða skatta.
Grunsamlegt hefði verið að Katsanos skyldi eyða öllum gögnum úr síma sínum og að hann hefði hringt fjöldamörg símtöl eftir það í útlensk númer. Sjálfur sagði Katsanos að hann hefði einungis hringt örfá símtöl eftir að hann eyddi gögnunum.
Níu ár fyrir að gegna mikilvægu hlutverki í smyglinu
Héraðsdómur taldi að það væri hafið yfir allan skynsamlegan vafa að Katsanos hefði flutt efnin inn af einbeittum ásetningi í ágóðaskyni. Horft var að einhverju leyti til þess að hann hefði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi. Þá var hann ekki talinn vera höfuðpaur í málinu en að hann hefði þó gegnt mjög mikilvægu hlutverki.
Það var Katsanos til refsiþyngingar að hann hefði ferðast um langan veg, villt á sér heimildir og gefið misvísandi svör þegar fíkniefnin fundust í bíl hans. Katsanos er gert að greiða 11,3 milljónir í sakarkostnað og 7,3 milljónir í laun til verjanda síns.