Vildi segja sögu sína í von um hjálp

Vildi segja sögu sína í von um hjálp

Vildi segja sögu sína í von um hjálp

Ungur maður féll fyrir eigin hendi síðastliðið sumar. Hann glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir og flakkaði árum saman milli búsetuúrræða og stofnana. Hann þurfti mikla og sérhæfða þjónustu en þegar aðstandendur óskuðu eftir aukinni aðstoð virtist fátt standa til boða.

Arnar Atli Björnsson lést 19. júní síðastliðinn. Hann svipti sig lífi eftir stutta en erfiða ævi. Hann var 24 ára. Uppritið hér fyrir ofan er upprit af símtali Sigrúnar Pálmadóttur, ömmu hans, við Neyðarlínuna skömmu áður en hann fannst lífvana heima hjá sér.

Glímdi við fjölþættan vanda frá æsku

Fjallað var um Arnars Atla í Kveik nýverið í tengslum við einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Hann dvaldi einmitt í um sex ár í slíkum úrræðum.

„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmtileg persóna,“ segir Sigrún um dótturson sinn.

„Síðan var hann alveg ofboðslega ljúft barn en gekk mjög illa alls staðar í skóla.“

Arnar Atli var með einhverfugreiningu en hann varð líka fyrir áföllum í lífinu, var lagður í einelti og glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir eftir því sem leið á. Hann ólst að mestu upp hjá ömmu sinni, sem talar um að það hafi farið að bera á verulegri vanlíðan á unglingsárunum.

„Bara þegar hann fór á gelgjuna, hormónaójafnvægið og það allt. Hann náttúrulega hefur upplifað sig sem strák, svo fór hann að fá blæðingar og fóru að vaxa brjóst og þetta einhvern veginn þvældist allt örugglega fyrir honum án þess að hann talaði um það.“

Arnar Atli var sem sagt trans, nokkuð sem amma hans segir að hafi verið vísbendingar um snemma.

Upplifði sig utangátta og fór að sýna ofbeldishegðun

Sigrún segir að Arnar Atli hafi trekk í trekk upplifað sig utangátta og óvelkominn. Hann fór að sýna af sér alvarlega ofbeldishegðun og var oft lagður inn á Barna – og unglingageðdeild. Ástandið heima fyrir var að sögn Sigrúnar orðið hættulegt.

„Hann réðst á mig og kýldi og sparkaði í mig og var bara mjög aggressívur.“

Myndirðu segja að hann hafi verið hættulegur?

„Já, ég hugsa að hann hefði nefnilega getað valdið mér mjög miklum skaða ef ég hefði verið með hann ein. Ef hann hefði náð mér niður þá hugsa ég að hann hefði... og þar af leiðandi þorði ég ekki að hafa hann lengur.“

Fimmtán ára í Vinakot og þaðan í Klettabæ

Svo fór að Arnar Atli flutti út af heimilinu og í einkarekna búsetuúrræðið Vinakot. Þaðan fór hann í annað slíkt úrræði, Klettabæ. Hann hlaut dóm fyrir líkamsárás á starfskonu í Vinakoti og sat þann dóm af sér í Klettabæ.

„Þetta er eina úrræðið þar sem mér finnst hafa verið hugsað um hans hag og hann mætt hlýju og skilningi,“ segir Sigrún um Klettabæ.

Klettabær er einkarekið fyrirtæki sem vistar bæði börn og fullorðna í búsetu, og þar var Arnar Atli fram til 21 árs.

Réð illa við aukið sjálfstæði og opnara úrræði

Þegar Arnar Atli var kominn fram yfir tvítugt var hann farinn að þrá aukið sjálfstæði og það virðist almennt hafa þótt æskilegt, miðað við gögnin í máli hans, að hann stigi skref í átt að eðlilegra lífi.

Hann var með þrjá starfsmenn með sér öllum stundum í Klettabæ og upplifði það íþyngjandi. Þarna virtist hann hafa hætt að sýna ofbeldishegðun og sjálfsskaði hafði minnkað verulega. En það kemur líka fram að hann hafi haft takmarkaða innsýn í daglegt líf fullorðins einstaklings og verið illa fær um daglegar athafnir.

Á endanum fór hann úr Klettabæ í úrræði sem átti að aðlaga hann út í samfélagið, Andrastaði. Sigrún segir að reynslan þar hafi verið slæm.

„Honum leið bara mjög illa þarna. Honum fannst starfsfólkið kuldalegt við sig. Svo fór hann að auka rosalega drykkjuna þarna og dópið.“

Ofbeldishegðun versnaði aftur og ferðir á geðdeild urðu tíðar. Í eitt skiptið sem Arnar Atli fór inn á geðdeild, síðasta vetur, var hann vistaður þar lengi, á meðan fundið væri fyrir hann nýtt úrræði. Hann fékk svo íbúð, með þjónustu hjá þjónustukjarna á vegum Reykjavíkurborgar, sem er ætlaður geðfötluðum.

„Hann er búinn að vera lokaður inni á geðdeild þarna í einn og hálfan mánuð og svo er bara: Gjörðu svo vel, hér er bara þín íbúð og nú sérð þú bara um þig sjálfur.“

Færður í sjálfstæða búsetu

Forstöðumaður á Andrastöðum, þar sem Arnar Atli bjó áður, skrifaði álit þar sem sagði að það hafi verið of stórt stökk fyrir Arnar Atla að koma beint úr þrímannaðri vistun í Klettabæ yfir á Andrastaði án heilbrigðisþjónustu. Hann skrifaði líka eftirfarandi:

„Arnar Atli Björnsson þarf að komast í lokað úrræði/stofnun í lengri tíma þar sem hann fengi greiningarferli og viðeigandi lyf/meðferð í kjölfarið til þess að geta svo hafið atferlismótun til að auka sín lífsgæði að nýju.“

Arnar Atli var samt sem áður settur í eigin íbúð, en með þjónustu frá þjónustukjarnanum. Hann var sjálfræðissviptur á þessum tíma.

„Þar á hann að geta farið líka og sótt aðstoð. En hann kann ekki að biðja um aðstoð. Hann hefur aldrei getað það.“

Og Sigrún segir að það hafi verið augljóst að Arnar Atli passaði ekki þarna inn. Nokkuð sem hún hafi ítrekað bent á.

„Þeir komu og hann öskraði: Drullið ykkur í burtu. Þá fóru þeir. Þetta var bara það sem hann gerði. Hann treysti aldrei neinum. Hann var alltaf alveg viss um að það myndu allir yfirgefa sig. Hann var búinn að lenda í því, það var bara svoleiðis að það gáfust allir upp á honum,“ segir Sigrún.

„Svo á endanum var það orðið svoleiðis að þeir sendu honum bara sms um að koma að sækja lyfin sín. Og ef hann kom ekki og sótti lyfin sín þá fékk hann ekkert lyfin sín.“

Sigrún segist oft hugsa til baka til þess þegar Arnar Atli var unglingur. Hún segir að tilfinningin sem fylgi því að senda barn af heimilinu og í búsetuúrræði sé mjög vond.

„Ég var alltaf með bakþanka og er ennþá með bakþanka um hvort ég hefði getað gert þetta einhvern veginn öðruvísi en að láta hann frá mér. Því þarna var hann að upplifa eina höfnunina enn.“

Engin þjónusta við að þrífa upp blóð eftir sjálfsskaða

Arnar Atli sökk æ dýpa í vanlíðan, neyslu og sjálfsskaða. Sjálfsskaðinn gat orðið verulega slæmur að sögn Sigrúnar. Stundum svo slæmur að flytja þurfti Arnar Atla á sjúkrahús. Sigrún lýsir aðkomunni í íbúð hans eftir eitt slíkt skipti.

„Við komum þarna eftir á og ég hef bara aldrei séð annað eins. Þetta var bara eins og að koma á morðvettvang. Og ég fékk bara taugaáfall.“

Í annað skipti hafi aðkoma eftir alvarlegan sjálfsskaða Arnars Atla verið þannig að Sigrún hafi beðið starfsmenn þjónustukjarnans um að hreinsa upp blóð, því hún einfaldlega treysti sér ekki til þess.

„Ég sný mér strax undan og spyr starfsmann hvort þau geti tekið þetta og hellt þessu niður fyrir mig, því ég geti þetta ekki. Og þá segir annar starfsmaðurinn að þau megi það ekki. Þau eigi ekki að gera neitt svona.“

Þjónusta byggðist á samvinnu við Arnar Atla

Arnar Atli var með þjónustusamning við þjónustukjarnann. Samkvæmt honum átti hann rétt á ýmiss konar aðstoð og stuðningi, til dæmis við ýmsar athafnir daglegs lífs, heimilisþrif og fleira. En þegar samningurinn er skoðaður virðist margt hafa byggst á samvinnu við Arnar Atla og að hann hefði ákveðið frumkvæði, og nýtti sér þá þjónustu sem honum bauðst, sem amma hans segir að hann hafi á þessum tímapunkti einfaldlega ekki haft burði til.

Sigrún skrifaði fjölmarga tölvupósta þar sem hún grátbað um að hann fengi aðstoð við hæfi. Helst vildi hún að hann fengi að fara aftur í Klettabæ.

„Hún var búin að segja við mig hún Jóka að hún gæti alveg útbúið úrræði fyrir hann með mjög stuttum fyrirvara þar sem hann hefði einn til tvo starfsmenn með sér allan sólarhringinn. Það væri ekkert mál. Og það var ekki séns að Reykjavíkurborg gæfi það eftir. Það var of dýrt.“

Yfirbugaður með rafbyssu í alvarlegu geðrænu ástandi

Í vor, aðeins örfáum vikum áður en Arnar Atli lést, var hann kominn á mjög slæman stað andlega. Aftur segir Sigrún að hann hafi verið á leið í geðrof. Hún ákvað að fara heim til hans og athuga hvort henni tækist að tala við hann og aðstoða. Hún segir að hann hafi leyft henni að setjast í efstu tröppurnar í stigagangi blokkarinnar sem hann bjó í.

„Við erum að spjalla eitthvað smá og hann horfir alltaf á mig svona paranojaður – að ég sé ekki alveg eins og ég er. Hvort ég sé nú örugglega amma hans. Og tekur mig svona kverkataki með annarri hendinni, en bara laust, en heldur svona smá stund. Svo segir hann: Hvernig finnst þér þetta? Og ég segi: Þetta skiptir mig engu máli,“ lýsir Sigrún.

„Ég var í rauninni ekkert hrædd við þetta því hann var ekkert að herða neitt að eða svoleiðis. Þetta var meira svona til að kanna viðbrögðin mín held ég. Og þá tekur hann mig og hendir mér upp að vegg og heldur mér, og bara: Þú ferð ekki neitt. Þá á endanum fannst mér þetta orðið svolítið ógnvekjandi.“

Sigrún segir að skyndilega hafi Arnar Atli svo tekið á rás upp stigann og inn í íbúðina sína.

„Þegar ég er að fara þá sé ég að hann er kominn út á svalir.“

Arnar Atli stóð þarna á svölunum, nakinn, og samkvæmt atvikaskráningu kastaði hann bæði hlutum og mat á lóð og í hús nágranna síns. Sigrún segir að nágranninn hafi þá hrópað á hann.

„Þú þarna stelpustrákur, viltu koma niður og taka upp draslið eftir þig. Þá bara sprakk hann. Og hleypur út og brýtur rúðuna hjá kallinum.“

Samkvæmt lýsingum á atvikinu ógnaði Arnar Atli nágrannanum. Lögregla var kölluð til. Arnar Atli stóð nakinn við hús nágranna síns og skaðaði sjálfan sig með skærum. Atburðarásin náðist á myndband en til að vernda friðhelgi Arnars Atla er hann hulinn í myndbandinu.

Í myndbandinu öskra tveir lögregluþjónar ítrekað á Arnar Atla að leggja frá sér skærin, ellegar verði rafbyssa notuð á hann. Það endaði með því að lögreglan yfirbugaði hann með rafbyssunni.

Eftir það var hann lagður inn á geðdeild í enn eitt skiptið. Þarna var því enn og aftur ljóst að Arnar Atli var fárveikur og ekki í aðstæðum eða umhverfi sem hann réði við. Aðstæðum sem enduðu með inngripi lögreglu og rafstuði.

Of veikur til að snúa heim en engin úrræði komu til greina

Arnar Atli var lengi á geðdeild. Hann átti svo að fá pláss á Kleppi, en það var bið eftir því. Í tölvupóstum sem Kastljós hefur undir höndum sést hvar Sigrún lætur vita að hún telji hann enn allt of veikan til að snúa aftur heim.

Starfsmaður Reykjavíkurborgar svarar:

„Þó að við séum öll sammála um að stuðningurinn í Hraunbæ er ekki að ná utan um hans þarfir, að þá er ekkert annað úrræði á vegum Reykjavíkurborgar sem myndi koma til greina, miðað við hans stuðningsþarfir í dag.“

Sigrún skrifar:

„Held við vitum það öll að ef hann verður bara útskrifaður og sendur í Hraunbæinn án frekari stuðnings endar það með ósköpum.“

Lögmaður og skipaður lögráðamaður Arnars Atla skrifaði um mál hans í samskiptum við borgina:
„Öryggi AAB er ótryggt með öllu og verið er að brjóta á réttindum hans. Finna þarf úrræði sem þjónar hans þörfum, tryggir öryggi hans og annarra og veitir honum mannsæmandi líf.“

Hver benti á annan

Þegar rýnt er í gögn um mál Arnars Atla virðast einhvern veginn allir sammála um það að hann fékk alls ekki þjónustu við hæfi. Hann réði einfaldlega ekki við sjálfstæða búsetu með þeim stuðningi sem bauðst.

Hver benti á annan – borgin talaði um að hann þyrfti aukna og sérhæfðari geðheilbrigðisþjónustu á meðan meðferðaraðilar hans á spítalanum bentu ítrekað á að hann þyrfti búsetu við hæfi og miklu meiri þjónustu.

Á meðan hann beið eftir plássi á Kleppi átti teymi af geðdeildinni að sinna honum. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala er bið eftir þjónustu slíks teymis rúmur mánuður.

„Svo gerist ekkert og það líða tvær vikur og þá gefst hann upp.“

Grátbað um að athugað yrði með Arnar Atla án árangurs

Að kvöldi 18. júní talaði Sigrún við Arnar Atla í síma. Hann sagðist ekki geta meira og hún reyndi að tala hann til.

„Og hann segir: Já en það gerist bara aldrei neitt. Það er alltaf bara talað en það gerist aldrei neitt. Sem var rétt hjá honum.“

Hann hafi svo lagt á. Þá hafi hún haft samband við þjónustukjarnann.

„Þar svarar karlmaður mér og ég bið hann hvort þeir geti farið fyrir mig yfir til hans því honum líði svo illa og ég hafi áhyggjur af honum.“

Sigrún segir að beiðni hennar hafi verið tekið fálega.

„Við eigum ekkert að gera það og eitthvað. En ég segi: Viljiði gera það fyrir mig núna því honum líður rosalega illa og ég hef áhyggjur af honum.“

Hún segir að á endanum hafi starfsmaðurinn samþykkt að ræða við annan starfsmann um að líta til Arnars Atla. Sigrún hringdi aftur nokkru síðar.

„Þá hafði enginn farið. Og ég sagði: Þá hringi ég á lögguna og skellti á.“

Þá voru um 45 mínútur liðnar frá því Sigrún hringdi fyrst í þjónustukjarnann.

Arnar Atli var ekki með lífsmörkum þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Það tókst að hnoða í hann lífi en hann komst aldrei aftur til meðvitundar. Arnar Atli lést á Landspítala 19. júní síðastliðinn.

„Það var bara því miður of seint,“ segir Sigrún.

„Honum var bara haldið gangandi í lungnavélinni þar til þeir voru tilbúnir hjá Svíþjóð að koma og sækja líffærin. Hann hefur bjargað sennilega sex til sjö mannslífum sögðu þeir, með gjöfinni sinni. Sem er yndislegt úr því að hann þurfti að deyja, að þá er það náttúrulega alveg æðislegt að þeir gátu nýtt svona mikið. En ég hefði samt frekar kosið að hann hefði fengið að lifa áfram. Því ég held að hann hafi alveg viljað lifa áfram. Ég held að þetta hafi bara gengið of langt hjá honum.“

Þurfa að sjá til þess að hópur fólks falli ekki á milli kerfa

Reykjavíkurborg vildi ekki veita viðtal. Samkvæmt sviðsstjóra velferðarsviðs borgarinnar er þeim ekki unnt að tjá sig um málefni einstakra þjónustunotenda. Borgin sendi þó skrifleg svör.

Þar segir meðal annars að ábendingar um sjálfsvígshættu séu alltaf metnar og brugðist við þeim í samræmi við aðstæður og verklag.

Sviðsstjórinn segir að ekki sé hægt að fullyrða hvort mistök hafi verið gerð í þessu máli á þessum tímapunkti. Öll alvarleg og óvænt atvik séu tilkynnt til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Þá segir að búsetuþjónusta sveitarfélags geti ekki komið í stað sértækrar heilbrigðisþjónustu. Þegar fjölþættur vandi sé til staðar sé mikilvægt að samvinna milli kerfa sé öflug. Það sé þó ljóst að ríki og sveitarfélög þurfi að rýna málaflokkinn og sjá til þess að ekki verði til hópur sem falli ítrekað á milli kerfa.

Arnar Atli ætlaði að segja sögu sína sjálfur

Kveikur komst í samband við Sigrúnu í vor. Í framhaldinu samþykkti Arnar Atli sjálfur að veita viðtal um reynslu sína. Hann lést áður en af viðtalinu gat orðið.

„Hann vildi fá að segja sögu sína í þeirri von að hann fengi meiri hjálp,“ segir Sigrún.

Hvað heldurðu að hann hefði sagt?

„Ég held að hann hefði bara sagt að hann vantaði meiri félagsskap. Hann væri í alltof mikilli einveru, hann væri alltaf einn. Að það væri einhver með honum sem myndi gera eitthvað með honum. Það var það sem hann þráði.“

#segja #sína #sögu #vildi #von


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-23-vildi-segja-sogu-sina-i-von-um-hjalp-493590

📰 Aðrar fréttir

Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
📅 25.11.2026 👁️ 0
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
Domestic gas prices will rise significantly in January under regulator Ofgem's new price cap.
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
📅 24.11.2026 👁️ 0
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í...
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
📅 24.11.2026 👁️ 0
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhver...
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags. Þetta er 75. keppnin sem hald...
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
📅 24.11.2026 👁️ 0
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
More young people in Britain have never had sex, but many are sexting and watching porn. 
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 0
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
📅 24.11.2026 👁️ 0
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
The network attacked key figures in the ruling DPP, including President Lai and mayoral candidate Shen.
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
Vill að þingið þrýsti á Pútín ef Trump geti það ekki - Vísir
„Ef Rússarnir halda áfram að þykjast minnislausir og dæla í okkur sagnfræði í stað þess að ná fram niðurstöðum í viðræðum, mun sá tími koma að það tek...
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
„Raddir þeirra fá að heyrast“ - Vísir
„Markmiðið er þar að stuðla að auknu samræmi, sérþekkingu og jafnræði við meðferð barnaverndarmála óháð því hvar barnið á heima,“ segir Inga Sæland, m...
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 2
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 2
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
📅 24.11.2026 👁️ 0
Nuclear test veterans speak to BBC about search for justice
Andy Burnham says veterans will get 'the full truth' as he confirmed plans for an investigation into the health legacy of Britain's Cold War-era atomi...
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 2
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 2
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 4
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 4
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 5
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að rík...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 5
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði á...
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
📅 24.11.2026 👁️ 5
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa ver...
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
📅 24.11.2026 👁️ 4
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
The verdict follows a months-long trial in New York.
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum V...
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
📅 24.11.2026 👁️ 3
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að ...
Efasemdir um Stafræna heilsu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Efasemdir um Stafræna heilsu
Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að ...
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
📅 24.11.2026 👁️ 3
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti ve...
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
Ragnheiður Harpa er fædd árið 1988 og hefur komið víða við í bókmenntaheiminum en hún hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand...
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á D...
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.Lögregl...
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
📅 24.11.2026 👁️ 3
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra ...
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu...
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
📅 24.11.2026 👁️ 2
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki...
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
Þetta segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki staðfest nafn seinni skól...
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 2
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 3
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 4
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 4
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
📅 24.11.2026 👁️ 5
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif Fréttin24. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Rannsókn, TransmálLeave a...
Fears over the AI boom haven't gone away
📅 24.11.2026 👁️ 4
Fears over the AI boom haven't gone away
There were legitimate fears before Huang's abrupt exit from Nvidia - and his return won't fix it
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í rusl­pósti - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í rusl­pósti - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 ...
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
📅 24.11.2026 👁️ 6
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
Police are investigating a wedding company in Gran Canaria after a car was driven along the pedestrian promenade at Las Canteras beach in Las Palmas, ...
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
Halldór Karl Halldórsson, lögmaður, er undrandi á að Guðmundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra, fái ekki réttlæti eins og aðrir í Milestone málinu, þrát...
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
📅 24.11.2026 👁️ 5
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
The sentencing brings a long-running legal battle to an end.
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð ræddi þyngdarstjórnunarlyf í Reykjavík síðdegis. Þar segir hún miður að fólk sem þurfi ekki á ...
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
📅 24.11.2026 👁️ 5
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig in...