Eftir að skýrsla um mannskæðan eldsvoða á Stuðlum kom út fundust yfir þúsund frávik við úttekt á brunavörnum í öðrum mannvirkjum ríkisins þar sem fólk er lokað inni, í haldi eða vistun. Ríkiseignir bera ábyrgð á brunavörnum í húsnæði hins opinbera.
Mest áhætta fyrir öryggi fólks í húsnæði í notkunarflokki 6
Fyrr í haust lauk Efla verkfræðistofa úttekt á brunavörnum í mannvirkjum ríkisins, þar sem fólk er lokað inni og ófært um að koma sér sjálft út í eldsvoða, líkt og í fangageymslum á lögreglustöðvum víða um land og fangelsinu Sogni.
Húsnæði í þeim flokki, notkunarflokki 6, felur í sér mesta áhættu fyrir öryggi fólks þegar kemur að brunavörnum. Ríkiseignir, sem eigandi mannvirkjanna, lét gera úttektina.
Hátt í 400 alvarleg frávik fundust
Úttektin leiddi í ljós 1034 frávik á brunavörnum. Þau alvarlegustu snúa til að mynda að ófullnægjandi flóttaleiðum og að rýmum var ekki skipt niður í aðskilin brunahólf. Önnur eru minna áríðandi. 383 frávik eru skráð í forgang 1 og teljast alvarleg.
Óskað eftir úttektinni 18 mánuðum eftir eldsvoða á Stuðlum
Rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar leiddi í ljós að verulegir annmarkar voru á brunavörnum á Stuðlum þegar eldsvoði varð og 17 ára piltur lést. Í rannsóknarskýrslu kom fram að eftirlitsaðilar hefðu ítrekað krafið Ríkiseignir, sem eiga húsnæði Stuðla, um úrbætur á brunavörnum en því ekki verið sinnt.
Skýrslan kom út tæpu einu og hálfu ári eftir að eldsvoðinn varð. Í kjölfarið sendu Ríkiseignir frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að þegar hefði verið brugðist við til að tryggja að byggingar í umsjón stofnunarinnar væru í lagi. Fimm starfsmenn Ríkiseigna voru með stöðu sakbornings vegna brunans þegar rannsókn lögreglu lauk.
Ríkiseignir fengu Eflu til að gera úttektina um miðjan apríl, á mannvirkjum þar sem fólk er í haldi, lokað inni. Úttektin tók til 27 mannvirkja víða um land, aðallega lögreglustöðva þar sem fólk er vistað í fangageymslum.
Endurtekin frávik og verulegt ósamræmi milli lögreglustöðva
Í minnisblaði Eflu, sem afhent var dómsmálaráðuneytinu og fréttastofa hefur undir höndum, kemur fram að úttektin sýndi endurtekin frávik í brunavörnum og verulegt ósamræmi milli lögreglustöðva. Tryggja þurfi öruggar flóttaleiðir og brunahólfun. Þá séu klefahurðir sérstakt áhættuatriði.
Óskar Jósefsson, forstjóri Ríkiseigna, baðst undan viðtali en í skriflegu svari segir hann að vinna við úrbætur sé þegar hafin og búið að ljúka lagfæringum á tæplega 40 prósent frávikanna, og tæplega helmingi þeirra alvarlegustu. Í einhverjum tilfellum sé verið að bíða eftir efni til þess að hægt sé að ljúka verkinu.
Ákveðið var að setja lögreglustöðina á Hverfisgötu og fangelsið að Sogni í forgang þar sem þar er umfangsmikil starfsemi, segir í svarinu. Nú hafa úrbætur verið hafnar í öllum þeim byggingum sem úttektin nær til, segir í svari frá Ríkiseignum.
Skýrslurnar sem útlista frávikin og hvers eðlis þau eru á hverjum stað fengust ekki afhentar, og vísað var til öryggissjónarmiða.
Vinna hafin við að yfirfara stöðu brunavarna í öðrum viðkvæmum flokki
Ríkiseignir bera einnig ábyrgð á fjölda mannvirkja í notkunarflokki 5 - þar sem fólk getur verið ófært um að koma sér út eins og á legudeildum sjúkrahúsa, vöggustofum og hjúkrunarheimilum.
Fréttastofa óskaði eftir stöðu á brunavörnum í þessum flokki. Óskar segir að eftir fyrri úttektina hafi verið hafin athugun á brunavörnum í flokki 5 og er sú vinna langt komin.