Vopnaðir menn drápu að minnsta kosti 13 verði úr öryggissveitum Níger í árás í héraðinu Tillaberi í vesturhluta landsins í dag. Ástandið þar er afar eldfimt samkvæmt yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti landsins.
Í Níger hefur herforingjastjórn farið með völdin síðan valdarán var framið árið 2023. Mikill órói er í landinu, meðal annars vegna ofbeldis af hálfu íslamista sem tengjast hryðjuverkasamtökunum Al-Qaeda og Íslamska ríkinu.
Þúsundir manna hafa fallið í átökunum á síðasta áratug. Verðirnir sem voru drepnir höfðu tekið þátt í aðgerðum gegn íslamistum.