Donald Trump Bandaríkjaforseti gerir lítið úr því að Rússland og Kína deili leyniþjónustuupplýsingum með Íran. Samkvæmt AFP-fréttaveitunni hafa fregnir borist af því að ríkin hafi aðstoðað írönsk stjórnvöld við að finna skotmörk, þar á meðal herstöðvar Bandaríkjanna.
Trump var spurður út í þetta á blaðamannafundi sem hann hélt í villu sinni í Mar-a-Lago í Flórída í gær. Trump greindi frá því að hann hefði rætt um Íran við bæði Xi Jinping forseta Kína og Vladímír Pútín Rússlandsforseta á nýlegum fundi þeirra. Það sé hans mat að þeir komi lítið að málefnum Írans.
„Þeir gætu vissulega blandað sér í málin en fyrir mér þýðir þátttaka að þeir grípi til vopna, ekki að þeir veiti þeim smávægilegar upplýsingar,“ segir Trump. „Við gerum það sama, vel á minnst. Þegar talað er um að þeir séu hugsanlega að njósna um okkur, þá njósnum við reyndar líka um þá.“
Hann segir að bæði ríkin vilji sjá deilunni við Íran ljúka og hann telji að þau séu að aðstoða sig í þeim efnum.