Yfirvöld í Frakklandi hafa kyrrsett skemmtiferðaskip með yfir 1.700 farþegum og áhöfn eftir að einn farþegi lést og tugir fundu fyrir verkjum í meltingarvegi. Ekki eru talin nein tengsl milli þessa skips og hollenska skipsins þar sem hantaveira breiddist út á dögunum.
Skemmtiferðaskipið í Frakklandi er frá Bretlandi. 1.233 farþegar eru um borð, flestir frá Bretlandi og Írlandi. 514 eru í áhöfn. Skipið kom í gær til hafnar í Bordeaux.
Heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi segja að farþeginn sem lést, sem var 92 ára, hafi fengið hjartaáfall. Ekki séu merki um nein tengsl milli dauðsfallsins og magakveisunnar.
Samkvæmt fyrstu sýnatöku er ekki nóróveirufaraldur um borð. Önnur sýnataka stendur yfir. Nóróveira getur valdið uppköstum og niðurgangi.
Fólkinu er haldið um borð í skipinu. AFP fréttaveitan hefur eftir einum farþeganna, Seos Guilidhe, að hann sé að spila bingó. Vel sé hugað að sóttvörnum um borð og að staðan sé ekki eins slæm og á tímum covid. Fólk megi umgangast hvert annað eins og venjulega.
Skipafélagið segir í yfirlýsingu að fólki verði hleypt frá borði um leið og grænt ljós komi frá stjórnvöldum.