Fyrrverandi fjölmiðla- og upplýsingafulltrúi Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseta, kom í viðtal til Tucker Carlson þar sem hún sakaði forsetann um spillingu, eiturlyfjaneyslu, valdníðslu og að hindra friðarviðræður við Rússland.
Iuliia Mendel starfaði sem talskona Zelensky á árunum 2019 til 2021 og hún sagði í viðtalinu að ímynd forsetans sem einskonar lýðræðishetju væri langt frá raunveruleikanum.
„Hann þrífst á og stórgræðir á stríðinu. Af hverju ætti hann að vilja binda enda á það?“ sagði Mendel.
Viðtalið hefur vakið gífurlega athygli á samfélagsmiðlum og þegar þetta er er skrifað hafa um milljón manns horft á það á Youtube einum saman.
Segir Zelensky hafa hafnað friði
Mendel hélt því fram að Zelensky hefði ítrekað hafnað raunhæfum valkostum hefðu getað leitt til friðar, alveg frá upphafi innrásarinnar. Hún sagði að samningaviðræður í Istanbúl árið 2022 hefðu verið komnar langt á veg og að Úkraína hefði verið tilbúin að samþykkja ákveðnar málamiðlanir til að stöðva stríðið.
Að hennar sögn hafi Zelensky skipt um skoðun og gert aðild að NATO að lykilskilyrði fyrir friði, þrátt fyrir að vita að slíkt væri óraunhæft. Þá fullyrti hún að Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, hefði hvatt Úkraínu til að halda stríðinu áfram með loforðum um áframhaldandi stuðning Vesturlanda.
„Hann notar skilyrði sem hann veit að er ómögulegt að uppfylla til að réttlæta áframhaldandi stríð,“ sagði hún.
Fullyrðingar um kerfisbundna spillingu
Í viðtalinu sakaði Mendel stjórn Zelensky um umfangsmikla spillingu og peningaþvætti. Hún sagði að einstaklingar innan stjórnkerfisins hefðu rætt leiðir til að flytja fé úr ríkissjóðum og að forsetinn sjálfur hefði samþykkt slíkar aðgerðir.
Þá hélt hún því fram að mokað væri bæði fé og auknum völdum undir embættismenn og ráðherra sem væru tryggir forsetanum á meðan gagnrýnendur væru ýmist fjarlægðir eða þaggað niður í þeim. Mendel sagði einnig að margir Úkraínumenn óttuðust að gagnrýna stjórnvöld vegna mögulegra afleiðinga sem slíkt hefði í för með sér.
Ásakanir um kókaínneyslu
Mest umtal hefur þó líklega skapast vegna ummæla Mendel um meinta fíkniefnaneyslu forsetans. Hún sagðist reyndar aldrei hafa séð Zelensky taka kókaín emð eigin augum en fullyrti að fjölmargir einstaklingar úr hans nánasta umhverfi hefðu sagt henni frá neyslu forsetans. Þá lýsti hún því hvernig Zelensky hafi oft farið inn á baðherbergi fyrir viðtöl og komið út „gjörbreyttur,“ eins og hún orðaði það.
„Allir tala um kókaínið,“ sagði hún þegar Tucker Carlson spurði hana beint út.
Þess ber þó að geta að engin gögn voru þó lögð fram í viðtalinu sem staðfesta ásakanirnar.
Segir Úkraínu vera að hrynja
Mendel sagði neyðarástand ríkja í Úkraínu og sagði landið á barmi hruns.
Hún sagði milljónir hafa flúið landið, efnahaginn vera í molum og almenning búa við stöðugan ótta.
„Það er ekkert lýðræði eftir,“ sagði hún og bætti því við að fólk sem gagnrýndi stjórnvöld væri oftast sakað um að bera út rússneskan áróður. Að lokum sagðist hún gera sér grein fyrir því að viðtalið þýddi að hún gæti aldrei snúið aftur til Úkraínu.
„Ég er að hætta öllu með því að stíga hér fram,“ sagði hún.