Viljayfirlýsing um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag. Að baki henni standa Reykjavíkurborg, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.
Yfirlýsingin byggir á greiningu sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) létu gera á möguleikum aukins samstarfs sveitarfélaganna og ríkisins um sérskólaúrræði.
Skoða hvort það þurfi að byggja nýjan sérskóla
Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, segir til skoðunar hvort byggja þurfi nýjan sérskóla á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir eru Arnarskóli, Klettaskóli og Korpuskóli.
Í tilkynningu segir að niðurstöður greiningar SSH sýni að samstarfið sé raunhæft. Með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflugri, sjálfbærari og fjölbreyttari úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.
„Í samstarfinu verður horft bæði til uppbyggingar langtíma sérskólaúrræða fyrir börn með langtímasérskólaþarfir, fjölbreyttra skammtímaúrræða og einnig til eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla,“ segir enn fremur.
Tímasetningin tilviljun
Í framhaldinu verður skipaður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan, til dæmis um uppbyggingu nýrra sérskóla, þróun skammtímaúrræða og eflingu sérdeilda innan almennra grunnskóla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok árs 2026.
Páll Björgvin segir að sveitarfélögin í samstarfi við ríkið greiði fyrir úrræðin sem stýrihópurinn á eftir að leggja til en skipting á kostnaði liggur enn ekki fyrir. „Það er eitt af því sem stýrihópurinn mun taka fyrir, hvernig það verður.“
Yfirlýsingin er undirrituð nokkuð stuttu fyrir sveitarstjórnarkosningar en Páll segir tímasetninguna vera tilviljun.
„Skýrslan er búin að vera í vinnslu í tæpt ár, hún er mjög ítarleg og fyrstu niðurstöður komu í mars og þá var ákveðið að fara betur ofan í staka þætti.“ Í framhaldinu átti sér stað samtal við ríkið um að gera viljayfirlýsingu. „Það gekk eftir í dag,“ segir hann.
Í haust var greint frá því að SHS skoðaði stofnun nýs sérskóla til að koma til móts við þann fjölda barna sem hefðu þörf á slíku úrræði.
Í hittifyrra þurfti að synja ellefu börnum um skólavist í Klettaskóla vegna plássleysis og í fyrra voru þau 26. Skólinn er sérskóli á grunnskólastigi fyrir börn með þroskahömlun og fjölfötlun sem rekinn er af Reykjavíkurborg en þjónustar börn af öllu landinu. Skólinn er hugsaður fyrir 70-90 nemendur en á yfirstandandi skólaári voru þeir 145.