Sævar Þór Jónsson, lögmaður Matthíasar Björns Erlingssonar, segir allar líkur á því að máli hans verði áfrýjað til Hæstaréttar. Refsing Matthíasar fyrir aðild hans að Þorlákshafnarmálinu svokallaða var í dag milduð úr 14 árum í 12 ára fangelsisdóm.
Dómar yfir Stefáni Blackburn og Lúkasi Geir Ingvarssyni voru mildaðir í 16 ára fangelsi úr 17 árum. Lögfræðingar Stefáns og Lúkasar Geirs vildu ekki tjá sig um dóminn þegar eftir því var leitað.
Sævar Þór Jónsson, lögmaður Matthíasar, sagði eftir dómsuppkvaðningu í dag að fyrstu viðbrögð hans við dómnum væru blendin.
„Þetta er lækkun úr fjórtán niður í tólf sem er ánægjulegt,“ segir hann. „En ég tel líkur á því að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Það eru ýmis vafaatriði sem ég tel að þurfi að leiða til lykta þannig að ég get sagt að það verður ekki látið kyrrt liggja.“
Aðspurður hver þau vafaatriði væru taldi hann ekki ástæðu til að útlista þau.
„Það eru ýmis lögfræðileg atriði sem kannski er langt mál að fara að fjalla um hér en ég tel allavega að það séu mjög miklar líkur á því að við látum reyna á það fyrir Hæstarétti enda þarf að skera úr um ýmis álitaefni,“ segir hann.
Stúlkan sýknuð af hlutdeild í ráni
Tvítug stúlka sem einnig var ákærð fyrir hlutdeild sína í málinu var í dag dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hún hafði áður verið sýknuð í héraðsdómi en héraðssaksóknari áfrýjaði þeim dómi til Landsréttar.
Elimar Hauksson, lögmaður stúlkunnar, segir það vissulega vonbrigði. Þó sé jákvætt að fallist hafi verið á að ásetningur hennar hafi ekki staðið til þess að Hjörleifur yrði beittur líkamlegu ofbeldi.
Hún hafi verið sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni.
„Og það er ekki fallist á þennan málatilbúnað ákæruvaldsins um að reyna þá að fá hana sakfellda fyrir fjárkúgun enda var hún ekki ákærð fyrir fjárkúgun og fjárkúgun ekki verknaðarlýst í þessari ákæru,“ segir hann.
Pilturinn sýknaður
18 ára piltur sem ákærður var í málinu var í dag sýknaður. Hann hafði áður hlotið tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögfræðingur hans segir niðurstöðuna ánægjulega.
„Þetta er rétt niðurstaða hjá Landsrétti sem snýr þarna við dómi héraðsdóms, það liggur auðvitað ljóst fyrir að það átti aldrei að ákæra umbjóðanda minn í þessu máli,“ segir hann. „En ég er mjög glaður með það að réttarríkið hafi virkað.“
Koma verði í ljós hvort ákæruvaldið áfrýji dóminum áfram til Hæstaréttar. „En ég vona ekki,“ segir hann.