Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, segir Viðreisn ætla sér að vinna til hægri eftir kosningar í Reykjavík. Flokkurinn daðri við Miðflokkinn en skjóti föstum skotum á Samfylkinguna.
„Þegar Snorri Már lagðist í víking gegn regnbogafánanum leit ég á það sem leiðangur gegn réttindum hinseiginfólks. Miðflokkurinn var á þeim tíma á miklu flugi, ekki síst í Borginni. Innanbúðarfólk sem ég tek mark á spáði honum fimm borgarfulltrúum. Á þeim tíma var ég ekki frá því sjálfur,“ segir Össur í færslu á samfélagsmiðlum. „Svo fór Snorri Már í sitt örlagaríka flug. Það fór illa í flesta. Svo illa, að flokkurinn skrensaði harkalega og hefur ekki náð sömu ferð og áður.“
Bæði með og á móti
Hafi Viðreisn tekið á þessu með mikilli festu enda gamli kjarninn í flokknum sérlega fastur á prinsippum. Segir Össur að það hafi glatt sig enda hafi málflutningur Snorra verið dapurlegur fyrir málefnið. Nú sé hins vegar annað uppi á teningnum.
„Úr kóngsins járni og arbeiði í útlöndum vekur það athygli mína þegar ég fer á hundavaði gegnum fréttir úr kosningabaráttunni heima í Reykjavík að það eina sem ég finn bitastætt frá forystu Viðreisnar í Borginni eru neikvæð ummæli um Samfylkinguna,“ segir Össur.
Hinn nýji foringi, Björg Magnúsdóttir, slái í og úr varðandi stóru málin og hafi tekist að vera bæði með og á móti samgöngusáttmálanum. „Hún segir í öllum viðtölum giska staffírug að hún ætli að “redda hlutunum” en sjaldnast hvernig. Eitt er henni efst í huga, hún ætlar að verða borgarstjóri. Það, fremur en málefnin, virðist vera rauði þráðurinn í framboði Viðreisnar í Reykjavík,“ segir Össur.
Sjálfvalda borgarstjóraefni
Nefnir hann til að mynda að „hið sjálfvalda borgarstjóraefni“ sé æft yfir myglu í skólum en minnið sé einstaklega vel taktískt smurt því að mygluskólanir voru reistir á vakt Viðreisnar.
Sjá einnig:
Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta fjarlægja regnbogafána við alla skóla í bænum
„Látum vera þó frambjóðandi sem er “fræg með enga reynslu” svo vísað sé í frægustu ummæli úr yfirstandandi kosningabaráttu um óskylt borgarstjóraefni, verði á sú hrösun að agnúast helst út í þann flokk, sem nú stendur á blístri við að koma í gegn á Alþingi máli sem bókstaflega er spurning um lif og dauða Viðreisnar – ekki síst formannsins,“ segir Össur. „En þegar löngu gleymdur stofnandi Viðreisnar rankar skyndilega við sér í pólitískri gröf og rekur upp sömu rokuna við lófatak gervalls ráðherraliðs Viðreisnar þá er varla tilefni til að spyrja hvort byssunum sé miðað eða þær skjóti sjálfar,“ segir hann og á við færslu Benedikts Jóhannessonar um að Samfylkingin ætti að fá frí frá meirihlutamyndun.
„Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn Reykjavíkur,“ segir Össur. „Hún felur ekki einu sinni að hún ætlar að leiða Sjálfstæðisflokkinn til valda – og réttlætir það fyrir bolnum með því að HÚN verði samt borgarstjórinn. Og forystan fagnar þegar oddvitinn í Reykjavík og pólitískir uppvakningar tala eins og búið sé að ná þeirri niðurstöðu innan flokksins að Viðreisn muni ekki vinna með Samfylkingunni.“
Leiði Sjálfstæðisflokkinn til valda
Þetta sé í takt við það sem ráðherrar hafi sagt um að Viðreisn sé hægri flokkur. Viðreisn ætli nú að sanna það með því að vinna til hægri og mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.
„Þetta er mikilvægt fyrir kjósendur að hafa á hreinu: Vilji þeir ekki fá Sjálfstæðisflokkinn í meirihluta í borginni – þá kjósa þeir ekki Viðreisn,“ segir Össur. „Á þessu er annar vinkill, og miklu verri. Þó ég telji að margt komi öðru vísi upp úr kjörkössum en kannanir benda til í dag, þá eru verulegar líkur á því, að Viðreisn geti ekki myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og gert hina hraðstígu Björgu að borgarstjóra – nema taka Miðflokkinn inn í þá mynd.“
Regnbogafánar dregnir niður í Reykjavík
Spyr hann hvort að Viðreisn ætli í alvöru að gefa Miðflokknum heilbrigðisvottorð og leiða flokkinn til forystu í Reykjavík, hafandi verið í forystu þeirra sem gagnrýndu fordóma flokksins gagnvart hinsegin fólki og baráttu Snorra Mássonar gegn regnbogafánanum.
„Það mun væntanlega leiða til þess að regnbogafánarnir sem blakta stundum fimm eða sex á leikskólanum við hliðina á Vestó, verði endanlega dregnir niður,“ segir Össur. „Þetta þurfa frjálslyndir kjósendur, og vinstri menn, að hafa í huga. Þeir þurfa að spyrja sig: Hvaða flokkur er besta vörnin gegn þessari þróun? Varla þeir sem daðra við að mynda meirihluta með Miðflokknum. Frjálslynt fólk getur því ekki kosið Viðreisn með góðri samvisku nema slegið sé í gadda að hún muni ekki mynda meirihluta með Miðflokknum. Það liggur ekki fyrir í dag.