Landsréttur kvað í dag upp dóma í Gufunesmálinu og mildaði refsingu yfir helstu sakborningum.
Málið varðar morð á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni, 65 ára gömlum manni frá Þorlákshöfn, sem lést eftir frelsissviptingu og miklar misþyrmingar þann 10. mars árið 2025.
Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvason höfðu verið dæmdir í 17 ára fangelsi í héraði fyrir sinn hlut í málinu en Landsréttur lækkaði refsingu þeirra niður í 16 ár.
Matthías Björn Erlingsson hafði verið dæmdur í 14 ára fangelsi í héraði fyrir sinn hlut í málinu en Landsréttur lækkar refsinguna niður í 12 ár.
Piltur sem sakfelldur var í héraði fyrir peningaþvætti í tengslum málið, með því að hafa tekið við greiðslu úr einkabanka Hjörleifs og lagt inn á reikning Matthísar Björns, var sýknaður í Landsrétti.
Stúlka sem hafði verið ákærð fyrir hlutdeild í ráni og frelsissviptingu með því að setja sig í samband við Hjörleif heitinn og vísa honum út í bíl til Stefáns og Lúkasar, var sýknuð í héraði, en Landsréttur sakfelldi hana og dæmdi í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.