Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í gærkvöld. Innbrotsþjófurinn komst undan á deilibíl Hopp. Þetta staðfestir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ásmundur segir að mikil hætta hafi verið á ferðum, þjófurinn hafi ekið hættulega eftir akbrautum og göngustígum í Fossvogi og gangandi vegfarendur hafi þurft að forða sér undan bílnum. Maðurinn skildi bílinn eftir á göngustíg í Fossvogi og reyndi svo að komast undan á fæti. Hann var handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangaklefa. Maðurinn er enn í haldi lögreglu og verður yfirheyrður seinna í dag.
Starfsmenn Hopp sáu bíl fyrirtækisins í eftirför lögreglu
Kristín Hrefna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Hopp segir starfsmenn Hopp hafa séð bíl fyrirtækisins í eftirför lögreglu. Í öllum ökutækjum Hopp er staðsetningartæki og segir Kristín því alltaf vitað hvar hver bíll sé hverju sinni.
Fyrirtækið sektar þá sem brotið hafa skilmála Hopp en segir Kristín ekki liggja fyrir hvort þeir hafi verið brotnir í þessu tilviki.
Braut hurð apóteksins
Innbrotsþjófurinn virðist hafa brotist inn um hurð apóteksins, sem er úr gleri, og búið er að setja tréplanka þar fyrir. Apótekarinn greindi frá innbrotinu á Facebook-síðu fyrirtækisins, sagði það brjóta hjartað í litla kaupmanninum og bað fólk sem hefði upplýsingar að hafa samband við apótekið eða lögreglu.