Saksóknarar í Þýskalandi telja yfirvöld í Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á gasleiðslum Nord Stream haustið 2022.
Í ákæru gegn grunuðum einstaklingi í málinu segir að hann og aðrir hafi framið verknaðinn að skipan stjórnvalda í Úkraínu. Sá var handtekinn sumarið 2025 á Ítalíu og framseldur ti Þýskalands í Nóvember sama ár. Hann heitir Serhii Kuznietsov.
Nord Stream gasleiðslurnar liggja frá Rússlandi til Þýskalands.
Í yfirlýsingu frá saksóknurum í dag segir að hinn ákærði hafi verið yfirmaður í Úkraínuher og eftir innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hafi hann ásamt fleirum úr hernum lagt á ráðin um að skemma leiðslurnar til þess að svipta Rússa tekjum af gasi.
Fluttu sprengiefni með snekkju
Í ákærunni segir að Kuzinetsov hafi farið fyrir teymi atvinnukafara, skipstjóra og sprengjusérfræðings sem leigði snekkju í þýsku höfninni Rostock við Eystrasalt og notað við það fölsuð skilríki.
„Með skipinu fluttu ákærði og samverkamenn hans mikið magn af öflugu sprengiefni sem er notað í hernaði í átt að dönsku eyjunni Bornholm,“ segja saksóknarar. Efnið var svo fest við leiðslurnar og sprengt fjórum dögum síðar.
Þýskaland hefur verið einn öflugasti hernaðarlegi bakhjarl Úkraínu í stríðinu og er málið því erfitt fyrir yfirvöld beggja ríkja.
Áskanir á víxl
Fjögur göt voru gerð á neðansjávarleiðslur Nord Stream í Eystrasaltinu, tvö í danskri lögsögu og tvö í sænskri. Ásakanir gengu á víxl og framan af þóttust margir vissir um að Rússar stæðu að baki skemmdarverkunum til að auka enn á orkukreppuna í Evrópu.
Rússar vísuðu því snarlega á bug og sökuðu Bandaríkjamenn, og þá sérstaklega bandarísku leyniþjónustuna CIA, um að hafa verið að verki. Rannsóknum á málinu miðaði hægt og illa og bæði dönsk og sænsk lögregluyfirvöld hættu sínum rannsóknum en Þjóðverjar héldu áfram og fóru fljótlega að beina sjónum sínum að Úkraínu.
Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum.