Arnar Þór Jónsson gagnrýnir stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu í nýrri færslu á Facebook þar sem hann sakar þá um skipulagðan áróður, persónuárásir og tilraunir til að grafa undan andstæðingum ESB aðildar.
Í færslunni notar Arnar Þór myndlíkingu um salami pylsu og segir stuðningsmenn aðildar sneiða málflutning sinn niður í litla bita til að gera hann auðmeltan. Hann segir þá vel fjármagnaða, vel skipulagða og leggja meiri áherslu á ímynd en efnisleg rök.
Segir pistil á DV vera árás á Heimssýn
Tilefni færslunnar er pistill sem birtist á DV og fjallaði um meintan klofning innan Heimssýnar. Arnar Þór segir umfjöllunina vera markvissa tilraun til að veikja þá breiðu andstöðu sem hafi myndast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Hann segir að ólíkt já-mönnum sé andstaðan ekki miðstýrð eða skipulögð af almannatengslafólki heldur spretti hún úr grasrót samfélagsins. Að hans sögn sé það einmitt styrkur hreyfingarinnar að fólk úr ólíkum áttum sameinist um andstöðu við ESB.
Nefnir Sólveigu Önnu og Halldór Benjamín
Í færslunni nefnir Arnar Þór sérstaklega að hann fagni því þegar ólíkir einstaklingar taki undir gagnrýni á Evrópusambandið. Hann segir meðal annars að sér þyki vænt um málflutning Sólveigar Önnu Jónsdóttur og telur að síðar kunni hún og Halldór Benjamín Þorbergsson að sameinast um andstöðu við ESB aðild.
Segir andstæðinga vera komna í rökþrot
Arnar segir svo að persónulegar árásir í garð andstæðinga ESB séu merki um að stuðningsmenn aðildar hafi tapað rökræðunni. Hann hafnar jafnframt þeim sjónarmiðum sem hann segir hafa komið fram í DV um Harald Ólafsson og segir ekkert hæft í því að hann styðji valdbeitingu af nokkru tagi.
Arnar Þór telur að umfjöllunin sýni að stuðningsmenn ESB grípi til persónuárása þegar efnisleg rök dugi ekki lengur.